Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í byrjun þessa skólaárs tóku nemendafélög Menntaskólans í Reykjavík þá stefnu að halda öll böll og alla atburði félagslífsins reyklausa. Árangur þessarar herferðar hefur farið fram úr björtustu vonum, tvö reyklaus böll hafa þegar verið haldin við frábærar undirtektir nemenda og er reyklaust jólaball skipulagt þann 19. desember.
Lesa meiraReyklaus bekkur er keppni þar sem öllum reyklausum 7. og 8. bekkjum í landinu er boðið að taka þátt svo fremi að enginn nemenda reyki. Frestur til að skrá sig til leiks hefur verið framlengdur þar til í vikulok, þ.e. til 12. nóvember.

Frítt til Evrópu fyrir reyklausa (Quit and win - Don’t start) er keppni ætluð ungu fólki á aldrinum 15-20 ára
og er liður í að hvetja ungt fólk á þessum aldri til reykleysis. Þátttakendur skrá sig með því að senda póstkort eða í gegnum heimasíðu Lýðheilsustöðvar.
Lýðheilsustöð og tóbaksvarnaráð fagna því að aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar, haldinn á Grand Hóteli Reykjavík þann 7. apríl 2005, leggi til að allir veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir frá og með 1. júní 2007. Með þessu hafa Samtök ferðaþjónustunnar fylkt sér í lið þeirra sem vilja tryggja öllu vinnandi fólki reyklaust umhverfi. Mikill meirihluti þjóðfélagsins hefur sýnt að hann kjósi að allir geti unnið í reyklausu umhverfi. Lýðheilsustöð og tóbaksvarnaráð undirstrika mikilvægi þess að löggjafinn setji sem fyrst lög þessu til staðfestingar.
Efling, stæðsta stéttarfélag starfsmanna veitinga- og skemmtistaða með veltu rúmlega 5000 starfsmanna á ársgrundvelli og 2500 starfsmenn starfandi í hverjum mánuði, fagnar frumvarpi Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri þingmanna um breytingar á lögum um tóbaksvarnir og hvetur Alþingi til að samþykkja frumvarpið.