Reykingar bannaðar á Nýja-Sjálandi
Þingmenn á Nýja-Sjálandi virða þau sjálfsögðu mannréttindi einstaklinga að þurfa ekki að anda að sér andrúmslofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra. Af þeim sökum hafa þeir bannað reykingar á öllum opinberum stöðum.
Nýsjálenska þingið hefur samþykkt lög sem banna reykingar á vinnustöðum og öðrum stöðum þar sem almenningur sækir. Lögin taka gildi seint á næsta ári. Reykingamönnum verður ekki refsað fyrir að kveikja sér í sígarettu á þessum svæðum en húseigendur verða sektaðir um sem nemur allt að 190.000 íslenskum krónum ef þeir gera ekki allt sem í þeirra valdi stendur til að sjá til þess að lögunum verði fylgt eftir. Þegar lögin taka gildi seint á næsta ári verður bannað að reykja í skólum, á veitingastöðum og krám, í lyftum, leigubílum og á salernum. Eftirlitsmenn á vegum ríkisins munu fylgjast með því að lögunum sé framfylgt.
