Sími : 5 800 900

Tóbaksvarnir

Reykingar bannaðar á Nýja-Sjálandi - 12.12.2003

Þingmenn á Nýja-Sjálandi virða þau sjálfsögðu mannréttindi einstaklinga að þurfa ekki að anda að sér andrúmslofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra. Af þeim sökum hafa þeir bannað reykingar á öllum opinberum stöðum.

Lesa meira
 

Enn dregur úr reykingum ungmenna - 4.11.2003

Dregið hefur úr reykingum meðal nemenda í 10. bekk grunnskóla, að því er fram kemur í niðurstöðum íslenska hluta evrópsku ESPAD samanburðarrannsóknarinnar fyrir árið 2003. 13,6% sögðust reykja sígarettur daglega nú til samanburðar við 20,8% árið 1995.

Lesa meira
 
Guðmundur Vikar Einarsson

Holdris byggist á heilbrigðum slagæðum - 20.10.2003

- Viðtal við Guðmund Vikar Einarsson þvagfæraskurðlækni um getuleysi af völdum reykinga.

„Rannsóknir sýna að 40-50% karlmanna á aldrinum fimmtíu til sjötíu ára eiga í einhverjum erfiðleikum með risið,“ segir Guðmundur Vikar þvagfæraskurðlæknir í viðtali sem birtist í aukablaði Morgunblaðsins á reyklausa daginn 31. maí 2003. Lesa meira
 
Reyklaus bekkur 2003 - 2004

Reyklaus bekkur Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja - 9.10.2003

Þetta er fimmta árið sem Ísland er með í þessu Evrópuverkefni. Í fyrra tóku rúmlega 340 bekkir þátt. Bekkirnir staðfesta reykleysi 6 sinnum í gegnum vefsíðu en nemendur munu einnig skrifa undir samning og staðfesta reykleysi sitt. Lesa meira
 

Óbeinar reykingar „drepa starfsfólk” - 1.10.2003

Samkvæmt nýlegri rannsókn drepa óbeinar reykingar á vinnustað þrjár manneskjur á degi hverjum. Lesa meira
 
Sigurbjörg Þrastardóttir

Að blása á silfraðan Zippo! - 1.10.2003

Ég var orðinn helsti trúður leiksins, leikstjórinn var ófáanlegur til þess að sleppa úr jafn fyndnu atriði svo að ég sat uppi með reykingarnar.
Ég hef einu sinni verið skikkuð til þess að reykja. Ég var rétt undir tvítugu og yfir mér stóð maður (nánar tiltekið yfirmaður minn) og ítrekaði að sæi hann mig ekki með sígarettu í hendi á hverju kvöldi næstu þrjár vikurnar myndi ég missa vinnuna. Grein eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sem birtist í aukablaði Morgunblaðsins á reyklausa daginn 31. maí 2003

Lesa meira
 

20 milljarða kostnaður vegna reykinga - 30.9.2003

Úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sýnir að þjóðfélagslegur kostnaður af völdum reykinga er tæpir 20 milljarðar á ári. Þar af tapast um 4 milljarðar vegna reykingapása á vinnutíma Lesa meira
 

Nýjar og stærri viðvörunarmerkingar á tóbaki - 3.6.2003

Heilbrigðisráðherra hefur nýlega staðfest reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki, í samræmi við reglur Evrópusambandsins. Reglugerðin hefur tekið gildi en veitt er undanþága um notkun eldri merkinga á sígarettum til ársloka og á öðrum tóbaki fram á næsta ár. Á hverjum pakka af sígarettum, vindlum og öðru reyktóbaki eiga að vera tvenns konar viðvaranir, annars vegar almenn viðvörun og hins vegar viðbótarviðvörun. Almenna viðvörunin á að þekja 30% af framhlið pakkans. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica