Sími : 5 800 900
Tannvernd

ÞITT ER VALIÐ - tannverndarvika 2011

29.1.2011

Veggspjaldið Þitt er valið. Smellið á myndina til að stækka.Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er helguð tannvernd og í ár er áhersla lögð á glerungseyðingu og hvernig stemma megi stigu við henni.

Af því tilefni hefur Lýðheilsustöð gefið út veggspjaldið Þitt er valið þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu.
Einnig hefur verið gefið út fræðslumyndband um umhirðu tanna barna, jafnt ungra sem þeirra eldri, og það talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Nýtt fræðsluefni er svo gjarnan gert fyrir leikskólabörn og yngstu börnin í grunnskóla í tannverndarvikunni og hefur það verið sent til allra leikskóla á landinu. 

Eitt af hlutverkum Lýðheilsustöðvar er að fræða og veita fólki upplýsingar um það sem hefur áhrif á heilsu. Í tannverndarvikunni í ár var ákveðið að beina sjónunum fólks að innihaldi drykkjarvara og áhrifum þess á glerungseyðingu – ekki síst hjá börnum og ungmennum en unglingar drekka t.d. mjög mikið af gosdrykkjum. Samkvæmt könnun RÍN (2003-2004) drekka 9 ára börn að meðaltali tæplega 2,5 lítrar á viku af gosdrykkjum og sætum svaladrykkjum og 15 ára unglingar tæplega 4 lítrar á viku.
Upplýsingarnar á veggspjaldinu eru settar fram á myndrænan hátt þannig að sem flestir skilji þær, jafnvel þeir sem ekki kunna íslensku til fullnustu, sem og til að hjálpa fólki að muna hvað er í hverjum drykk þegar kemur að því að velja sér drykkjarvöru. Veggspjaldið, sem er í A2 stærð, er hægt að panta eða prenta út í A4 stærð.

Tengt efni:

Þitt er valið

Bragðbættir vatnsdrykkir - eru þeir hollir?

Mikilvægt að fylgjast með koffínneyslu barna og unglinga

Glerungseyðing – vaxandi vandi íslenskrar æsku

Þitt er valið

Hvað borða íslensk börn og unglingar?

Heilsa og líðan skólanema 2006 (bls. 28)

Hvað hentar börnum best að drekka?

Nammidagur – hugum að sykurmagninu

Mikilvægt að fylgjast með koffínneyslu barna

 

Fræðsla um tannvernd barna á myndböndum

Tannvernd_Barna_DVD_MMEyddur tannglerungur kemur aldrei aftur og því afar mikilvægt að veita upplýsingarnar um það sem getur skaðað glerunginn. Veggspjaldið er liður þar í. En tannheilsa barna á Íslandi er ekki nógu góð og margt þarf að koma til svo bæta megi þar úr. Almenna umhirða tanna barna þarf að bæta og almennt skortir á að börn komi reglulega í eftirlit til tannlæknis. Lýðheilsustöð hefur látið gera myndband um tannvernd barna þar sem farið er yfir þau atriði sem hafa þarf í huga við umhirða á tönnum barna og ungmenna. Þess er vænst að sem flestir foreldrar kynni sér efnið og tileinki sér þar sem þar er kennt, og komi þannig í veg fyrir tannskemmdir hjá börnum sínum og stuðla að góðri tannheilsu þeirra allt lífið.  

Komið hefur í ljós að tannheilsa barna innflytjenda er oft verri en annarra barna á Íslandi og því hefur fræðsluefnið verið talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Auðvelt er að nálgast efnið því hægt er að horfa á það í gegnum vefsíðu Lýðheilsustöðvar auk þess sem hægt er að panta DVD-disk með efninu á íslensku og ensku. Upplýsingum um efnið hefur verið miðlað til allra leik- og grunnskóla, heilsugæslustöðva, tannlæknastofa og annarra staða sem að gagni kunna að koma og viðkomandi beðnir að vekja athygli foreldra á því.

Til að auðvelda notkun er fræðsluefninu skipt í kafla:
1. Yngri en 3 ára
2. 3-6 ára
3. 6-12 ára
4. Tannskemmdir
5. Áhættuhópar. 

Yngstu börnin

4 Litamyndir yfirlitPlakat_tannverndarvika_2011Árlega er útbúið nýtt fræðsluefnið fyrir tannverndarviku sem hentar yngstu aldurshópunum. Að þessu sinni var gert nýtt veggspjald um tannvernd til að hengja upp á leikskólum og barmnælur með sömu myndum og eru á veggspjaldinu. Jafnframt voru útbúnar myndir til að lita, sem allir geta nálgast í gegnum vefsíðu Lýðheilsustöðvar. Veggspjaldið var einnig sent til skóla og þeim boðið að panta eintök til að hengja upp í stofum yngstu barnanna.

Fyrir foreldra

Burstum saman - dreifirit. Smellið á mynd til að stækka.Auk fræðslumyndbandanna um tannhirðu barna voru slíkar upplýsingar settar upp á A4 blað sem leikskólar eru beðnir að hengja upp sem og að senda foreldrum í tölvupósti, en þeir geta þá prentað blaðið sjálfir og hengt upp heima við.  

 

 

 

 

 

 

 

Umfjöllun í fjölmiðlum um efni tannverndarviku


Kastljós 28.1.2011

Fréttablaðið 29.1.2011

visir.is 31.1.2011

Mbl.is 31.1.2011

ÍNN - Heilsuþáttur Jóhönnu 31.1.2011

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica