Tannverndarvikan hefst
Í dag, 1. febrúar 2010, hefst árleg Tannverndarvika en í henni er lögð áhersla á málefni tannheilsu. Að þessu sinni er kastljósinu beint að tannheilsu barna en eins og MUNNÍS rannsóknin sýndi þá búa börn á Íslandi við verstu tannheilsu á Norðurlöndunum. Margt þarf að gera til að snúa vörn í sókn, ekki síst að huga almennt betur að tannhirðu barnanna. Útbúið hefur verið lifandi myndefni þar sem farið er yfir það helsta sem snýr að tannburstun barna og er það aðgengilegt hér á vefsíðunni.
Lýðheilsustöð, í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og starfandi barnatannlækna á Íslandi, lét útbúa lifandi myndefni, sem hægt er að horfa á hér á vefsíðunni og panta á dvd-diski innan skamms.
Tannburstun
Einnig voru settar gagnlegar leiðbeiningar um tannburstun á blað sem dreift var til allra leikskóla, auk þess að minna á fræðsluefni um tannvernd barna á mörgum tungumálum og ókeypis forvarnaskoðun fyrir börn í ákveðnum aldurshópum. Bréf var jafnframt sent til allra skóla um tannverndarvikuna, ásamt fræðslublaðinu um tannburstun, og skólstjórnendur beðnir um að miðla upplýsingunum til foreldra og forráðamanna.
Tannheilsa og tóbaksnotkun
Oft er það ekki fyrr en á unglingsárunum sem tennur, sem hafa fram til þess tíma verið heilar, fara að skemmast. Bæði er unga fólkið þá sjálft farið að bera ábyrgð á tannhirðu sinni og neysluvenjurnar hafa breyst, s.s. farið að bera á miklu gosdrykkjaþambi og sælgætisáti með tilheyrandi afleiðingum fyrir tennurnar, en einnig hafa því miður þó nokkrir farið að nota tóbak. Því var tekið saman efni á hér á vefsíðunni um áhrif tóbaks á tannheilsuna. Upplýsingum um þetta efni verður síðan miðlað til allra framhaldsskólanema.
Líka afsláttur af ,,heilsunammi"
Sent var bréf til verslana og þær hvattar til að bjóða einnig afslátt af einhverju heilsusamslegu, s.s. ávöxtum, eins og boðinn er afsláttur af sælgæti um helgar - og sums staðar alla daga. Lýðheilsustöð væntir þess að vel verði tekið í þessa hvatningu.
Meira fræðsluefni
Bent er á samantekt yfir meira fræðsluefni sem hentar foreldrum
Einnig samantekt yfir efni sem hentar kennurum
