Sími : 5 800 900
Slysavarnir

Spörum ekki í öryggismálum

28.10.2008

Núna þegar þjóðin stendur frammi fyrir efnahagsþrengingum sem hafa áhrif á allt samfélagið er mikilvægt að huga að öllum þáttum sem snerta velferð fólks, þar með talið eru öryggismál.

Slysavarnaráð hvetur forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja, sem og stjórnmálamenn, til að spara ekki þegar öryggi starfsmanna, og landsmanna í heild, er í húfi.

Ráðið leggur áherslu á að áfram verði sinnt nauðsynlegu og eðlilegu viðhaldi á öllum öryggisþáttum og öryggisbúnaði. Landsmenn hafa ekki efni á því að slysatíðni aukist og allra síst að slysin verði alvarlegri. Heilsan er okkar dýrmætasta eign og ef við tryggjum hana eins vel og hægt er, þá tryggjum við velferð okkar.

Árið 2007 voru 38.901 slys skráð í Slysaskrá Íslands og má ætla að kostnaður vegna þeirra sé um 30 - 40 milljarðar króna.

Draga má verulega úr slysum og slysahættu með öflugri fræðslu um slysavarnir, öryggisbúnað í bifreiðum, tækjum og vélum, brunavörnum, varúðarráðstöfunum vegna meðhöndlunar, geymslu og flutnings á hættulegum efnum, öryggismerkingar í byggingum og aflokun hættulegra staða, s.s. svæða þar sem framkvæmdir standa yfir.

 

Vinnum öll saman að öryggi og velferð landsmanna,

  

Lýðheilsustöð / slysavarnaráð

Brynjólfur Mogensen formaður, Landspítali

Birna Hreiðarsdóttir, samgönguráðuneyti

Eyrún Jónsdóttir, Landspítali

Jón Ólafsson, Samtök fjármálafyrirtækja

Kristinn Tómasson, Vinnueftirlitið

Sigrún Þorsteinsdóttir, Slysavarnafélagið Landsbjörg

Svanhildur Þorsteinsdóttir, Landlæknisembættið

------

Úr reglugerð um sérfræðiráð Lýðheilsustöðvar:

5. gr.  Slysavarnaráð

Heilbriðgisráðherra skipar sjö menn og jafnmarga til vara til setu í slysavarnaráði til fjögurra ára í senn. Sex fulltrúar skulu tilnefndir af eftirtöldum aðilum; Landlækni, Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, Umferðarráði, Vinnueftirliti ríkisins, Samtökum tryggingafélaga og Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Ráðherra skipar formann án tilnefningar. Varamenn skulu tilnefndir og skipaðir með sama hætti.

Hlutverk slysavarnaráðs er að stuðla að fækkun slysa.

Ráðið skal sjá til þess að slys séu skráð með samræmdum hætti. Jafnframt skal ráðið hlutast til um úrvinnslu skráðra upplýsinga og birtingu þeirra. Ráðið mótar reglur um framkvæmd skráningar og aðgang að upplýsingum úr skránni. Samræmd slysaskrá skal varðveitt hjá landlækni.

Slysavarnaráð mótar tillögur um slysavarnir í samvinnu við Lýðheilsustöð og skulu þær m.a. byggðar á gögnum slysaskrár.

Reglugerð um sérfræðiráð Lýðheilsustöðvar (PDF-skjal)

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica