Sími : 5 800 900
Slysavarnir

„Göngum í skólann“- verkefnið er hafið á ný

11.9.2008

„Göngum í skólann“ verkefnið er hafið í annað sinn á Íslandi. Meginmarkmið verkefnisins eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga hjóla eða fara á annan hátt til og frá skóla.

„Göngum í skólann“ er alþjóðlegt verkefni sem hófst í Bretlandi árið 2000, og Ísland tekur nú þátt í annað sinn. Verkefnið var formlega sett í Grundaskóla á Akranesi þann 10. september s.l., en Grundarskóli er móðurskóli umferðarfræðslu á Íslandi. Verkefninu lýkur svo á alþjóðlega „Göngum í skólann“- deginum þann 8. október.

Meginmarkmið verkefnisins er að: Gongum_i_skolann_2008_Umferdarstofa

  • hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar,
  • kenna reglur um öryggi á göngu og hjóli,
  • draga úr umferð við skóla. - stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál,
  • hvetja til heilbrigðs lífstíls fyrir alla fjölskylduna.

[mynd fengin af vef Umferðarstofu; www.us.is]

Við setninguna fluttu þeir Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og Karl V. Matthíasson formaður Umferðarráðs ávörp. Eftir að Karl hafði sett verkefnið gengu nemendur og kennarar Grundaskóla ásamt aðstandendum verkefnisins um næsta nágrenni skólans. Með í för voru sýslumaðurinn á Akranesi og bæjarstjóri Akraness.

Þeir sem standa að verkefninu eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Umferðarstofa, Lýðheilsustöð, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Heimili og skóli og Menntamálaráðuneytið. Þegar hafa 24 skólar skráð sig til leiks.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu þess gongumiskolann.is

Kynningarbréf um verkefnið.

(Word-skjal)

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica