Sími : 5 800 900
Slysavarnir

Áhættuhegðun ungra ökumanna - Morgunverðarfundur 9. september

2.9.2008

lydheilsustod, merkiheader_logo,_umferdarradLýðheilsustöð/slysavarnaráð og Umferðarráð standa fyrir morgunverðarfundi um áhættuhegðun ungra ökumanna, þriðjudaginn 9. september kl. 8 -10 á Grand Hóteli. Tveir hollenskir sérfræðingar auk sérfræðings frá Umferðarstofu munu halda fyrirlestra og tækifæri gefst til fyrirspurna og umræðna.

Viðbætur 12.9.: Útdráttur úr fyrirlestrum og efni fundarins.

Viðbætur 12. sept.: Efni fundarins og útdrátt úr fyrirlestrum er að finna hér.

Slys í umferðinni eru ein helsta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 17 til 24 ára í OECD-löndunum. Árið 2004 leiddi OECD saman ráðgjafanefnd sem ætlað var að kanna og skilja þá þætti sem hafa áhrif á slysatíðni ungra ökumanna og leita leiða til að draga úr þessum háa fórnarkostnaði. Dagskrá fundarins tekur mið af þessari vinnu.

DAGSKRÁ

08.00                Fullnaðarskráning / morgunverðarhlaðborð

08.20                Setning fundar – Karl V. Matthíasson, formaður umferðarráðs

                         Ávarp Kristján Möller, samgönguráðherra

08.30                Young drivers:  the road to safety

                         - Recommendations from the OECD international expert group

Divera Twisk:  sviðsstjóri rannsókna á mannlegri hegðun hjá SWOV, stofnun um umferðarrannsóknir í Leidschendam, Hollandi

09.00                Why do young novice drivers have such a high crash rate?

Willem Vlakveld: rannsakandi hjá SWOV, stofnun um umferðarrannsóknir í Leidschendam, Hollandi

09.30                Námskeið vegna akstursbanns og árangur af því

Holger Torp, verkefnastjóri ökunáms hjá Umferðarstofu

09.45                Umræður og fyrirspurnir

10.00                Fundarslit - Brynjólfur Mogensen, formaður slysavarnaráðs 

Fundarstjóri Björn Malmquist. 

Skráning 

Fundurinn er öllum opinn en skrá þarf þátttöku. Skráning fer fram á vef Lýðheilsustöðvar www.lydheilsustod.is/skraning og þátttökugjald er 2000 krónur.

Frestur til að skrá þátttöku er til kl. 12 á hádegi mánudaginn  8. september.

Efni fundarins

Erindi Divera Twisk nefnist „Young drivers: the road to safety - Recommendations from the OECD International Expert Group“. Í fyrirlestrinum er fjallað um þær aðferðir sem nefndinni þóttu vænlegar til árangurs og hvernig megi koma þeim í framkvæmd. Nefndin komst einnig að því að ákveðnar reglur og leiðir sem ætlað er að draga úr þessum vanda eru ekki áhrifaríkar og sumar jafnvel skaðlegar.

Divera Twisk er sviðsstjóri rannsókna á mannlegri hegðun hjá SWOV, stofnun um umferðarrannsóknir í Leidschendam. Stofnunin er þverfagleg rannsóknarstofnun sem hefur að markmiði að efla öryggi á vegum úti með stuðningi vísindalegra rannsókna. Helstu rannsóknaáherslur Diveru Twisk eru mynstur slysa, ungir ökumenn og námsferill þeirra, auk skoðanna á mannlegum þáttum. Divera Twisk situr í fjölmörgum alþjóðlegum nefndum er varða umferðaröryggi.

Erindi Willem Vlakveld nefnist „Why do young novice drivers have such a high crash rate?“ Fjölmargar ástæður liggja á bak við háa slysatíðni ungra ökumanna. Meðal þeirra er hæfni til að meta eigin getu og einnig hvernig hver og einn skynjar áhættu. Undirliggjandi þættir voru settir fram í eftirfarandi; 1) aldur, kyn og þroski í heilastarfsemi, 2) menntun, þjálfun og lífstíll, 3) skert hæfni í akstri; áfengi, ólögleg vímuefni, en einnig; þreyta, tilfinningar og truflanir, 4) skynjun, greining aðstæðna, ákvarðanataka og 5) bílnotkun.

Willem Vlakveld starfar einnig hjá SWOV í Leidschendam. Helstu rannsóknarefni hans eru ungir ökumenn, ökukennsla, áhrif refsipunkta og rannsóknir á áhættuskynjun og þjálfun. Vlakveld starfaði áður sem ráðgjafi varðandi öryggi á vegum í samgönguráðuneyti Hollands. 

Holger Torp er verkefnastjóri ökunáms hjá Umferðastofu og fjallar hann um námskeið vegna akstursbanns og árangur af því. Ökumenn sem hafa bráðabirgðaskírteini fara í akstursbann fái þeir fjóra refsipunkta eða fleiri í ökuferil og verða í kjölfarið að ljúka sérstöku námskeiði og endurtaka ökupróf til að fá ökuskírteini að nýju. Sama á við um þá ungu ökumenn sem fá sviptingu af einhverju tagi; þeir þurfa einnig að sitja þetta námskeið og endurtaka ökuprófið.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica