Sími : 5 800 900
Slysavarnir

Slysavarnaráð ályktar um breytingu á áfengislögum

4.1.2008

Á fundi sínum í desember samþykkti slysavarnaráð umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um áfengi þar sem ráðið lýsir m.a. yfir áhyggjum sínum um að hugsanlega geti fyrirhugaðar breytingar leitt til enn fleiri slysa og ofbeldisverka í samfélaginu.

Slysavarnaráð hefur samþykkt og sent frá sér eftirfarandi umsögn um frumvarp til laga um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks.

Reykjavík, 18. 12.2007

Efni: Umsögn slysavarnarráðs um frumvarps til laga um um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks. (6. mál, 135. löggjafarþing 2007-2008)

Slysavarnaráð lýsir yfir áhyggjum sínum vegna líklegra áhrifa á tíðni slysa og ofbeldis verði frumvarp til breytinga á áfengislögum samþykkt Rannsóknir sýna að aðgengi að áfengi hefur mikil áhrif á heildarneyslu áfengis (sjá samantekt í: Babor o.fl. 2006). Þar sem áfengisneysla er áhrifaþáttur margra slysa, líkamslegs-, kynferðislegs- og andlegs ofbeldis í íslensku samfélagi, eins og erlendis, þykir ljóst að aukið aðgengi að áfengi verði til þess fallið að auka tíðni slysa og ofbeldis.

Um alvarleika málsins má m.a. lesa í ársskýrslum rannsóknarnefndar umferðarslysa. Árið 2006 voru 9 banaslys í umferðinni þar sem áfengisneysla var orsakaþáttur. Ölvunarakstur skaðar ekki eingöngu þá sem taka ákvörðun um að keyra ökutæki undir áhrifum áfengis heldur eru saklausir vegfarendur einnig í verulegri hættu.

Áfengisneysla er því ekki aðeins vandamál þeirra sem neyta áfengis heldur samfélagsins alls. Árið 2005 komu 1500 manns á bráðamóttöku Landspítala vegna ofbeldisáverka. Árið 2006 fjölgaðu komum á bráðamóttöku vegna ofbeldis í 1660. Þótt ekki séu til tölur hér á landi um það hversu margir hljóta áverka vegna ofbeldis þar sem áfengisneysla er orsakaþáttur, þá benda erlendar rannsóknir og reynsla lögreglu og starfsfólks á bráðamóttöku heilbrigðisstofnana til að áfengisneysla sé mjög oft orsakaþáttur í ofbeldisverkum. Áfengistengt ofbeldi bitnar ekki aðeins á þeim sem drekka áfengi heldur einnig á almennum borgurum, heilbrigðisstarfsfólki og löggæslufólki.

Fjölmörg félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir vinna ötullega að slysavörnum á Íslandi þar sem markvisst er hugað að bættum aðstæðum fólks í leik, starfi og samgöngum með það að markmiði að fækka slysum. Hætt er við að árangur þessarar góðu vinnu verði minni ef aðgengi að áfengi eykst verulega með sölu áfengis í matvöruverslunum.

Kostnaður einstaklinga og samfélagins í heild vegna slysa og ofbeldis er nú þegar verulegur. Meiri áfengisneysla, sem líkleg er í kjölfar aukins aðgengis að áfengi, mun auka þennan kostnað verulega (sem er aðeins að hluta metinn til fjár).

Víða í Evrópu kallar heilbrigðisstarfsfólk eftir aðgerðum stjórnvalda til að draga úr bráðaskaða (slys og ofbeldi) og langtímaskaða (afleiðingar slysa og fjölmargir sjúkdómar) sem áfengisneysla orsakar. Það er því mikilvægt að Íslendingar læri af reynslu annarra þjóða þegar hugað er að breytingum í áfengismálum.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica