Sími : 5 800 900

Slysavarnir

Höfuðmeiðsl eru meginorsök dauðaslysa og alvarlegs líkamstjóns á skíðasvæðum - 23.11.2010

snjoithrottahjalmurLýðheilsustöð tekur undir hvatningu Euro Safe um að stjórnvöld og stjórnendur skíðasvæða beiti sér fyrir því að allir sem nýta sér skíðasvæði hlíti skilyrðislaust þeirri reglu að vera með hjálm á höfði.
Á hverju ári slasast þúsundir manna við iðkun vetraríþrótta í Evrópu. Talið er að meðal þeirra sem iðka snjóbrekkuíþróttir í Evrópusambandinu verði á hverju 300.000 slys sem sinna þarf á spítölum, þar á meðal 170.000 skíðaslys og 90.000 snjóbrettaslys (1).

Lesa meira
 

Seltjarnarnesbær undirritar fyrstur samning um Öruggt samfélag - 28.10.2010

SC_Seltjarnarnes_Undirskr_001_1024pSeltjarnarnesbær varð í dag fyrst íslenskra sveitarfélaga til að ganga formlega til liðs við verkefni Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunar­innar (WHO) og Lýðheilsustöðvar um Öruggt samfélag, þegar bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir, og forstjóri Lýðheilsustöðvar, Margrét Björnsdóttir, undirrituðu samning þar um.

Lesa meira
 

Efni ráðstefnunnar Öruggt samfélag komið á vefinn - 7.6.2010

SC-ICELAND_150Lýðheilsustöð, og fleiri, stóðu fyrir Evrópsku ráðstefnunni Öruggt samfélag í maí sl. Nú hafa fyrirlestrar frá ráðstefnunni verið settir á vefsíðu Lýðheilsustöðvar ásamt tali allra aðalfyrirlesaranna.

Lesa meira
 

Öruggt samfélag – Seltjarnarnes fyrsta sveitarfélagið til að taka þátt - 18.5.2010


mynd_20100519_091506Á morgun hefst á Grand hóteli alþjóðleg ráðstefna Lýðheilsustöðvar og fleiri um örugg samfélög. Á ráðstefnunni verður m.a. athöfn þar sem gengið er frá því formlega að Lýðheilsustöð sé miðstöð fyrir Örugg samfélög á Íslandi. Nýverið samþykkti Seltjarnarnesbær að starfa í anda Öruggs samfélags og er fyrsta bæjarfélagið á Íslandi sem það gerir.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica