Sími : 5 800 900
Slysavarnir

Aukin andleg, líkamleg og félagsleg færni aldraðra stuðlar að fækkun slysa

Frá 7. landsþingi Slysavarnaráðs

26.10.2006

Slysavarnaráð hélt sitt 7. landsþing 19. október 2006 undir yfirskriftinni ,,Slysavarnir aldraðra”.

Eftirfarandi ályktun var borin upp til samþykktar á landsþinginu:

7. landsþing slysavarnaráðs sem fjallaði um slysavarnir eldri borgara ályktar að mikill og vaxandi fjöldi slysalandsthing_slysa_hnappur_forsn þeirra sé hinum aldraða, fjölskyldunni og samfélaginu dýrkeypt vandamál. Til þess að fækka slysum og draga úr afleiðingum þeirra er árangursríkast að leggja enn meiri áherslu á forvarnir aldraðra sem auka andlega, líkamlega og félagslega færni þeirra. Landsþingið skorar á stjórnvöld að leggja aukna áherslu á þennan málaflokk.

Viðfangsefni þessa 7. landsþings slysavarnaráðs var helgað slysavörnum aldraðra og var þar haldinn fjöldi áhugaverðra erinda um þetta brýna málefni. Meðal annars var um áverka meðal aldraðra, tíðni, tegundir og alvarleika. Þá voru erindi um helstu orsakir slysa meðal aldraðra og um aldraða og umferðarslys. Einnig var fjallað um kostnað vegna slysa hjá öldruðum – þátt sjúkrahúsþjónustu. Jens Lauritsen, yfirlæknir við háskólasjúkrahúsið í Óðinsvéum sagði frá uppbyggingu svæðisbundinna forvarnaaðgerða vegna slysa aldraðra og hlutverki yfirvalda, sjúkrahúsa og aldraðra í slíku starfi.

Hægt er að nálgast nokkur erindanna sem flutt voru hér fyrir neðan:

Að eiga aldraða foreldra - Dr. Erla S. Grétarsdóttir

Áverkar aldraðra - tíðni, tegundir og alvarleiki - Brynjólfur Mogensen

Gildi heilsueflingar aldraðra - Dr. Erlingur Jóhannsson

Aldraðir og umferðarslys - Ágúst Mogensen

Tryggjum öldruðum öryggi - Herdís L. Storgaard

Orsakir slysa meðal aldraðra - Ólafur Þór Gunnarsson

Heimaslys eldri borgara - Sigrún A. Þorsteinsdóttir

Responsibility and possibilities - Elements for inspiration in the role of regions, municipalities, hospitals, general practice, local areas and the individual elderly

- Jens Lauritsen

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica