Egils Kristal Plús fer á markað
Í viðtali við forstjóra Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í fréttatíma Stöðvar 2, þann 15. febrúar, kom fram að ekki þurfi að óttast áhrif of mikllar fólasínneyslu þar sem einu áhrifin væru þau að B-12 vítamínskortur gæti leynst en þar sem B-12 vítamín er í drykknum sé ekki hætta á því að það gerist.
Það rétta er hins vegar að ástæða B-12 vítamínskorts er yfirleitt ekki sú að það skorti í fæði heldur er skert upptaka úr meltingarvegi vegna sjúkdóma í maga eða þörmum, en frásog B12 vítamíns er óvenju flókið ferli sem krefst meðal annars sérstaks próteins sem framleitt er í magaslímu. Í þeim tilfellum dugar ekki að nóg magn sé af B-12 vítamíni í fæðunni.
Skortur á B-12 vítamíni hefur alvarlegar afleiðingar, veldur stórkornóttu blóðleysi og taugarýrnun í mænu, heila, sjóntaug og taugum í útlimum.
Einnig má nefna að stórir skammtar af fólasíni geta komið í veg fyrir nýtingu sinks úr fæðu. Þegar farið er að raska mikið hlutföllum bætiefna í fæðunni getur það farið að hafa áhrif á nýtingu þeirra. Æskilegast er að fá bætiefnin úr fæðunni í náttúrlegum hlutföllum.
