Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Athugasemd vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um Kristal plús

7.2.2005

Í kjölfar umræðna sem verið hefur um vítamínbætingu á bragðbættu vatni vill Lýðheilsustöð taka fram að stöðin er einungis umsagnaraðili um leyfisveitingar til íblöndunar bætiefna í matvöru – leyfisveitingar eru á hendi Umhverfisstofnunar.

Hvað varðar ofangreint þá var stöðin beðin um álit á því hvort íblöndun sex B-vítamína í bragðbætt vatn væri æskileg út frá manneldissjónarmiðum, sérstaklega með tillitil til hugsanlegra eituráhrifa.

Lýðheilsustöð vill því koma á framfæri nokkrum mikilvægum atriðum sem hafa ber í huga við vítamínbætingu á matvælum.

Þegar veitt eru leyfi til slíkrar bætingar þarf að taka tillit til þess hvort þörf sé fyrir aukna neyslu efnisins í ákveðnum hópum samfélagsins og svo ekki síður hvort vítamínbætingin gæti hugsanlega skaðað hópa eða einstaklinga. Til að auðvelda þá vinnu hafa verið birt alþjóðleg viðmið um efri mörk fyrir neyslu bætiefna, og eins hvaða aðferðum skuli beitt til að meta hversu líklegt sé að um ofneyslu verði að ræða vegna íblöndunar. Umsókn Ölgerðarinnar um vítamínbætingu í bragðbætt vatn var metin á þennan hátt, og var B-vítamínið fólasín það efni sem sérstök ástæða þótti til að skoða nánar, þar sem alþjóðleg efri mörk fyrir þetta efni eru tiltölulega lág, sérstaklega fyrir börn. Útreikningarnir leiddu í ljós að nokkurt svigrúm er til fólasínbætingar hjá fullorðnum hér á landi, en ekki hjá börnum. Þótt æskilegt sé að auka fólasínneyslu landsmanna, þótti þessi leið ekki ákjósanleg þar sem hér er um orkulítinn drykk að ræða, sem auðvelt er að neyta í miklu magni. Ekki verður heldur séð hvernig hægt er að markaðssetja vöru undir hollustumerkjum, sem ekki hæfir börnum. Hvað önnur B-vítamín varðar, skortir þau almennt ekki í fæði landsmanna, en jafnframt er lítil hætta á ofneyslu þeirra. Í ljósi þessa þótti bæði manneldisráði og Lýðheilsustöð ekki rétt að mæla með vítamínbætingu í slíkan drykk í því magni sem um ræðir.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica