Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Hollusta og áhrifamáttur CLA fitusýra ekki sönnuð

21.12.2004

Í tilefni af frétt sem birtist í blöðum í sl. viku um ágæti konjugeraðrar línolsýru (CLA) vill Lýðheilsustöð slá nokkurn varnagla við því að fólk sé hvatt til að auka neyslu á þessari gerð fitusýra.

Þótt niðurstöður dýratilrauna sýni að CLA geti haft jákvæð áhrif á tilraunadýr eru niðurstöður á fólki engan veginn jafn afdráttarlausar og sumar þeirra benda jafnvel til að þær geti stuðlað að heilsutjóni. Þótt hér sé um áhugavert efni að ræða er ótímabært að lýsa yfir hollustu þess að svo komnu máli og því síður er ástæða til að skilgreina fæðu sem hollustuvöru á grundvelli CLA innihalds.

Ákveðin gerð af CLA fitusýrum (cis-9, trans 11 CLA), sem fyrst og fremst er að finna í mjólkurfitu, hefur sýnt sig að draga úr líkum á krabbameini í tilraunadýrum. Það hefur einnig komið í ljós að önnur gerð CLA fitusýra (trans 10, cis 12 CLA) dregur úr fitusöfnun og eykur vöðvamassa í tilraundýrum. Í yfirlitsgrein þar sem skoðaðar voru niðurstöður fjölda rannsókna, þar sem fólki var gefið CLA, kom hins vegar fram að áhrif CLA á líkamsfitu fólks eru umtalsvert minni en það sem komið hefur fram í tilraunadýrum, auk þess sem CLA virðist ekki hafa veruleg áhrif á blóðfitur í fólki. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt að CLA (trans 10, cis 12 CLA) getur aukið insúlínónæmi og C-reactive prótein gildi í fólki og þar með aukið líkurnar á sykursýki. Þar sem áhrif CLA á mannslíkamann eru enn þetta óljós hafa vísindamenn verið varkárir í yfirlýsingum um hollustu efnanna. Hlutverk CLA fitusýra í mannslíkamanum eru greinilega flókin og frekari rannsókna þörf áður en hægt að er að ráðleggja fólki að neyta efnisins sér til heilsubótar.

 Upplýsingar um CLA sem fæðubótarefni má einnig finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar: www.ust.is



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica