Stöndum vörð um hollustu og gæði skólamáltíða
Í ljósi umræðu um niðurskurð í grunnskólum landsins vekur Lýðheilsustöð athygli á mikilvægi þess að staðið sé vörð um gæði skólamáltíða. Skólamáltíðir eru lögbundin þjónusta samkvæmt 23. grein grunnskólalaga nr. 91 frá 2008. Samkvæmt lögunum skulu nemendur eiga kost á málsverði á skólatíma í samræmi við opinber manneldismarkmið.
| SKÓLAMÁLTÍÐIR STUÐLA AÐ JÖFNUÐI OG VELFERÐ |
|---|
| Með skólamáltíðum gefst tækifæri til að hafa áhrif á heilsu og líðan barna, stuðla að jöfnuði og þannig standa vörð um velferð barna í grunnskólum landsins. |
Flestir foreldrar vinna úti fullan vinnudag og skóladagurinn hefur lengst. Þau börn sem eru í lengdri viðveru eru allt upp í níu klst. í skólanum á dag. Þau geta því þurft að fá á bilinu 30-70% af orku- og næringarþörf sinni á þeim tíma. Þörfin fyrir hollan og staðgóðan mat í skóla er því brýn og hollur matur þarf ekki að vera dýrari en minna hollur matur. Því geta hollar og góðar skólamáltíðir stuðlað að jöfnuði og þannig varið velferð barna.
Á tímum efnahagsþrenginga er mjög mikilvægt að standa vörð um hollustu og gæði skólamáltíða.
Þótt foreldrar séu ábyrgir fyrir mataræði barna sinna þá verður ekki framhjá því litið að með skólamatnum gefst einstakt tækifæri til að kenna börnum góðar neysluvenjur. Rannsóknir hafa sýnt að vel nærð börn eiga betra með að einbeita sér og mataræðið getur haft áhrif bæði á námsárangur og hegðun. Þetta eru þeir þættir sem skipta skólastarfið hvað mestu máli og því má segja að næringin gegni veigamiklu hlutverki í öllu skólastarfi.
Með hollum mat í skóla er hægt að hafa jákvæð áhrif á heilsu nemenda og starfsfólks skólans að auki getur hann einnig verið mikilvægur liður í forvörnum gegn ofþyngd og offitu.
Leiðbeiningar fyrir skólamötuneyti
Hlutverk Lýðheilsustöðvar er meðal annars að koma með leiðbeiningar fyrir skólamötueyti. Lýðheilsustöð gaf út Handbók fyrir skólamötuneyti fyrst árið 2003 og endurskoðaða útgáfu árið 2005, sem síðan hefur verið endurútgefin árin 2008 og 2010. Handbókin byggir á ráðleggingum um mataræði og næringarefni en þær taka mið af nýjustu vísindarannsóknum á sviði næringar og heilsu á hverjum tíma, könnunum á mataræði og norrænum næringarráðleggingum sem nú eru í endurskoðun.
