Margar góðar ástæður fyrir því að borða 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag
Í tenglsum við niðurstöðu nýrrar rannsóknar vill Lýðheilsustöð koma á framfæri að margar góðar ástæður eru fyrir því að borða 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem náði til tæplega hálfrar milljónar manna í tíu Evrópulöndum yfir rúmlega níu ára tímabil, sýndu að neysla um 200 g af ávöxtum og grænmeti á dag lækkaði heildarnýgengi krabbameina aðeins um tæplega 4%.
Þó þessi nýja rannsókn sýni e.t.v. að grænmeti og ávextir sé ekki töfralausnin gegn krabbameini, hvað fæðu snertir, þá eru þó ennþá margar góðar ástæður fyrir því að borða grænmeti og ávexti. Það ber einnig að hafa í huga að í rannsókninni voru skoðuð bein áhrif
samanlagðrar neyslu á öllum tegundum af grænmeti og ávöxtum við tíðni alls krabbameins. Þannig að þessar niðurstöður segja ekkert um áhrif einstakra tegunda á tiltekið krabbamein, s.s. tómata, káls, berja og fleiri tegunda.
Af hverju grænmeti og ávextir?
Grænmeti og ávextir eru mikilvæg uppspretta ýmissa mikilvægra næringarefna og er hollusta þeirra meðal annars fólgin í ríkulegu magni þeirra af trefjum, ýmsum vítamínum og steinefnum og öðrum hollum efnum. Rífleg neysla grænmetis og ávaxta dregur úr líkunum á ýmsum langvinnum sjúkdómum þar á meðal hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki af gerð 2 og offitu. Offita er einmitt stórt vandamál hér á landi og er áhættuþáttur fyrir ýmsa langvinna sjúkdóma þar á meðal krabbamein. Það er því hægt að segja að grænmetis- og ávaxtaneysla geti haft óbein áhrif á þróun krabbameina. Auk þess sem grænmetis- og ávaxtaneyslu fylgir oft að minna er borðað af óhollum fæðutegundum sem geta aukið líkur á krabbameini.
Ráðleggingar
Það eru því ennþá margar ástæður fyrir því að borða grænmeti og ávexti, auk þess sem það gefur matnum lit og skemmtilegt bragð. Borðið því 5 skammta eða minnst 500 g af grænmeti, ávöxtum og safa á dag, þar af a.m.k. 200 g af grænmeti og 200 g af ávöxtum.
Skoða: útdrátt úr grein í Journal of the National Cancer Institute
Ráðleggingarum mataræði og næringarefni, Lýðheilsustöð
Fræðslubanka um vítamín
