Fitusýrur í matvælum - ný greining
Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís ohf fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni af borðsmjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti.
Nýjar greiningar á fitusýrum í matvælum - hlutfall trans-fitusýra er mjög breytilegt
Í næringarráðleggingum er mælt með því að fólk borði eins lítið af trans-fitusýrum úr iðnaðarhráefni og hægt er. Einnig er mælt með því að takmarka neyslu á mettuðum fitusýrum. Með þessu móti er hægt að draga úr líkum á hjartasjúkdómum. Skortur hefur verið á upplýsingum um trans-fitusýrur í matvælum á íslenskum markaði en nú hefur að nokkru leyti verið bætt úr því.
| Stór rannsókn var gerð á fitusýrum í öllum flokkum matvæla á íslenskum markaði árið 1995. Niðurstöður greininganna nú sýna að hlutfall trans-fitusýra fyrir nær öll matvælin er lægra en áður var. |
|---|
Í öllum flokkum matvara greindust a.m.k. sum sýnanna með litlu sem engu af trans-fitusýrum og er það mikil breyting frá því sem var. Til dæmis var nær ekkert af trans-fitusýrum í þeim tegundum af kexi sem teknar voru til skoðunar. Þetta sýnir að matvælaiðnaðurinn hefur fundið leiðir til að framleiða afurðir án trans-fitusýra. Það greindist þó talsvert af trans- fitusýrum í nokkrum sýnum af smjörlíki, bökunarvörum, ís og poppkorni. Ljóst er að framleiðendur geta endurbætt þessar vörur og losað þær við trans-fitusýrur. Niðurstöðurnar eru í samræmi við það að víða erlendis hefur náðst góður árangur við að draga úr trans-fitusýrum í matvælum.
Niðurstöður fitusýrugreininganna eru teknar saman fyrir fitusýruflokka í töflu hér neðar.
Helstu niðurstöður mælinganna voru:
a. Hlutfall trans-fitusýra í þeim matvælum, sem greind voru, hafði almennt lækkað frá árinu 1995 en þá var gerð stór rannsókn á fitusýrum í íslenskum matvælum.
b. Í sýnum af kexi var mjög lítið af trans-fitusýrum (undir 0,8% af fitusýrum). Í sýnum af sælgæti var lítið af trans-fitusýrum (undir 2% af fitusýrum). Í sýnum af mat frá skyndibitastöðum voru trans-fitusýrur undir 3,5% af fitusýrum.
c. Í sýnum af borðsmjörlíki, bökunarvörum, jurtaís, smjörlíki og snakki voru matvörur frá sumum framleiðendum með mikið af trans-fitusýrum en í sýnum frá öðrum framleiðendum var magn þessara fitusýra óverulegt. Þetta sýnir að vel er framkvæmanlegt að framleiða þessi matvæli án trans-fitusýra.
d. Merkingar á umbúðum stóðust ekki í öllum tilfellum fyrir þær vörur sem voru til skoðunar. Umbúðir fyrir eitt kexsýnið bentu til þess að trans-fitusýrur væru í kexinu þar sem tilgreind var jurtafeiti hert að hluta. Það reyndist hins vegar ekki rétt, kexið var laust við trans fitusýrur.
Í Danmörku er hámarksgildi fyrir transfitusýrur úr iðnaðarhráefni 2% af öllum fitusýrum. Hlutfallið er undir þessum mörkum fyrir 27 vörumerki og tegundir safnsýna af alls 42 eða 64% af öllum vörumerkjunum og tegundum safnsýna.
Rétt er að benda á að þótt transfitusýrum sé útrýmt úr ákveðnum fæðutegundum þá er ennþá sá möguleiki fyrir hendi að varan innihaldi mettaða fitu og það ef til vill í miklu magni.
Innihaldslýsingar
Þótt magn trans-fitusýra sé almennt ekki merkt á umbúðir matvæla geta neytendur samt dregið vissar ályktanir af innihaldslýsingum. Ef jurtaolía er eina fituhráefnið má reikna með að matvælið innihaldi ekki trans-fitusýrur og tekist hafi að halda mettuðum fitusýrum í lágmarki. Sérstaklega ætti að huga að þessu í innihaldslýsingum fyrir brauð, kökur og kex. Hafa þarf í huga að kókosfeiti og pálmafeiti eru harðar feitmetistegundir úr jurtaríkinu og innihalda mikið af mettuðum fitusýrum. Ef fita hert að hluta (partially hydrogenated) kemur fyrir í innihaldslýsingu má gera ráð fyrir trans-fitusýrum. Hert fita er hins vegar ekki sönnun þess að trans-fitusýrur séu í vörunni en gera þarf ráð fyrir talsverðu af mettuðum fitusýrum.
Nánari upplýsingar um transfitusýrur
Niðurstöður fitusýrugreininga á matvælum 2008 og 2009.
Taflan sýnir magn (g) fitu og fitusýra í 100g.
| Matvara | Tími | Fita | Mettaðar | Trans | Ómettaðar |
| fitusýrur | fitusýrur | fitusýrur | |||
| Borðsmjörlíki | |||||
| Borðsmjörlíki A | Ágúst 2008 | 43,7 | 11,2 | 0,6 | 28,9 |
| Borðsmjörlíki B | Ágúst 2008 | 67,6 | 12,6 | 9,8 | 41,0 |
| Borðsmjörlíki B | Sept 2009 | 64,1 | 20,1 | 12,4 | 26,6 |
| Bökunarvörur | |||||
| Heilhveitibrauð A | Ágúst 2008 | 3,1 | 0,7 | 0,1 | 1,5 |
| Hjónabandssæla A | Ágúst 2008 | 16,9 | 7,2 | 0,1 | 8,0 |
| Jólakaka A | Ágúst 2008 | 14,7 | 4,1 | 1,4 | 7,6 |
| Jólakaka B | Júní 2009 | 12,5 | 6,5 | 0,1 | 5,0 |
| Jólakaka C | Júní 2009 | 11,3 | 3,7 | 0,1 | 6,6 |
| Kleinur A | Ágúst 2008 | 15,9 | 3,5 | 3,4 | 7,4 |
| Kleinur B | Júní 2009 | 17,9 | 5,8 | 3,6 | 6,8 |
| kleinur B | Sept 2009 | 24,0 | 6,5 | 6,1 | 8,8 |
| Kleinur C | Júní 2009 | 20,6 | 7,9 | 0,1 | 11,1 |
| Kleinur D | Júní 2009 | 19,0 | 3,5 | 2,9 | 10,7 |
| Smjördeigshorn A | Ágúst 2008 | 24,7 | 12,7 | 0,6 | 8,9 |
| Snúðar A | Ágúst 2008 | 4,6 | 1,3 | 0,1 | 2,1 |
| Vínarbrauð A | Ágúst 2008 | 23,4 | 10,0 | 0,2 | 11,0 |
| Vínarbrauð A | Júní 2009 | 22,4 | 9,8 | 0,2 | 10,7 |
| Djúpsteikingarfeiti | |||||
| Feiti A | Ágúst 2008 | 100,8 | 90,1 | 0,9 | 4,1 |
| Djúpsteikt / steikt matvæli | |||||
| Franskar kartöflur A | Ágúst 2008 | 16,1 | 2,3 | 0,4 | 11,7 |
| Franskar kartöflur A | Sept 2009 | 14,9 | 1,5 | 0,1 | 11,9 |
| Franskar kartöflur C | Ágúst 2008 | 6,3 | 2,2 | 0,1 | 3,4 |
| Hamborgarar A | Ágúst 2008 | 15,0 | 5,9 | 0,5 | 6,7 |
| Kjúklingabitar A | Ágúst 2008 | 13,8 | 3,2 | 0,1 | 8,9 |
| Ís | |||||
| Jurtaís A | Júní 2009 | 9,6 | 8,2 | 0,0 | 0,7 |
| Jurtaís B | Ágúst 2008 | 10,2 | 3,7 | 1,8 | 3,5 |
| Jurtaís B | Júní 2009 | 10,0 | 2,6 | 2,1 | 4,3 |
| Jurtaís B | Sept 2009 | 11,4 | 2,4 | 1,4 | 6,5 |
| Jurtaís C | Ágúst 2008 | 10,0 | 8,2 | 0,0 | 0,7 |
| Matvara | Tími | Fita | Mettaðar | Trans | Ómettaðar |
| fitusýrur | fitusýrur | fitusýrur | |||
| Kex | |||||
| Kex A | Ágúst 2008 | 20,3 | 8,7 | 0,1 | 9,1 |
| Kex B | Ágúst 2008 | 17,5 | 9,1 | 0,1 | 6,3 |
| Kex C | Ágúst 2008 | 13,0 | 6,5 | 0,0 | 4,9 |
| Kex D | Sept 2009 | 12,4 | 6,3 | 0,0 | 4,7 |
| Kex E | Ágúst 2008 | 12,4 | 6,1 | 0,0 | 4,8 |
| Kex F | Ágúst 2008 | 22,4 | 10,5 | 0,1 | 9,2 |
| Smjörlíki | |||||
| Smjörlíki A | Ágúst 2008 | 83,8 | 33,9 | 2,8 | 41,4 |
| Smjörlíki B | Ágúst 2008 | 82,3 | 33,9 | 1,7 | 41,3 |
| Smjörlíki C | Ágúst 2008 | 79,8 | 34,2 | 0,3 | 40,3 |
| Smjörlíki D | Ágúst 2008 | 82,0 | 26,6 | 12,9 | 37,1 |
| Smjörlíki D | Júní 2009 | 81,2 | 38,8 | 0,4 | 38,2 |
| Smjörlíki E | Ágúst 2008 | 83,0 | 25,9 | 18,1 | 33,6 |
| Snakk | |||||
| Kartöflusnakk A | Ágúst 2008 | 21,8 | 1,5 | 0,0 | 17,7 |
| Poppkorn A | Ágúst 2008 | 17,2 | 12,2 | 0,0 | 2,9 |
| Örbylgjupoppkorn A | Sept 2009 | 18,7 | 8,2 | 0,1 | 8,4 |
| Örbylgjupoppkorn B | Júní 2009 | 26,1 | 5,5 | 6,8 | 10,2 |
| Örbylgjupoppkorn B | Sept 2009 | 23,2 | 4,8 | 5,9 | 9,3 |
| Örbylgjupoppkorn C | Sept 2009 | 10,4 | 2,1 | 2,2 | 4,6 |
| Sælgæti | |||||
| Súkkulaðivara A | Ágúst 2008 | 25,4 | 15,6 | 0,4 | 7,3 |
| Súkkulaðivara B | Ágúst 2008 | 25,1 | 13,4 | 0,4 | 9,5 |
| Súkkulaðivara C | Sept 2009 | 29,3 | 20,6 | 0,1 | 6,6 |
