Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Mikilvægt að fylgjast með koffínneyslu barna og unglinga

18.1.2010

Í ljósi þess að talsvert framboð er nú af drykkjarvörum og öðrum matvælum sem innihalda koffín telur Lýðheilsustöð ástæðu til að hvetja foredra og aðra til að fylgjast vel með koffínneyslu barna og unglinga. Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða.

Sérfræðingar Lýðheilsustöðvar í næringu hafa tekið saman aðgengilegt fræðsluefni um koffín sem nálgast má með því að smella á tengilinn.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica