Nýtt fræðsluefni um næringu barna - fyrir dagforeldra og ungbarnaleikskóla
Út er komið hjá Lýðheilsustöð nýtt fræðsluefni: Ráðleggingar um næringu barna, fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla. Tilgangurinn með útgáfunni er að auðvelda þessum aðilum að gefa börnunum hollan og góðan mat við þeirra hæfi.Mörg börn byrja hjá dagforeldrum eða í ungbarnaleikskóla fyrir eins árs aldurinn. Næring barna fyrstu aldursárin leggur grunninn að fæðuvenjum þeirra síðar meir sem og viðhorfum þeirra til matar. Því er mikilvægt að ungbörn fái tækifæri til að borða fjölbreyttan og hollan mat bæði til að þau dafni og þroskist eðlilega og til þess að matarsmekkur þeirra verði fjölbreyttur.
Í bæklingnum eru ráðleggingar um fæðuval sem henta sérstaklega hverju aldurskeiði að tveggja ára aldri. Ráðleggingarnar að eins árs aldri eru byggðar á bæklingnum Næring ungbarna en í honum er góð umfjöllun um mataræði barna á fyrsta ári. Ráðleggingarnar frá eins til tveggja ára aldri hafa hins vegar ekki verið birtar áður. Aftast í bæklingum er yfirlitstafla sem veitir yfirsýn yfir hvaða fæðutegundir henta barninu á hverju aldursskeiði.
Loks er bent á nokkra bæklinga frá Lýðheilsustöð og áhugavert lesefni á vefsíðu stöðvarinnar sem tengjast efninu. Það er von okkar á Lýðheilustöð að ráðleggingarnar komi dagforeldrum og starfsfólki smábarnaleikskóla að góðu gagni.
Skoða Ráðleggingar um næringu barna, fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla
Panta Ráðleggingar um næringu barna, fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleiksskóla
