Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Fæðuframboð á Íslandi 2007- Aukning á ávöxtum og grænmeti en einnig harðri fitu

17.2.2009

Lýðheilsustöð hefur birt tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árið 2007 hér á heimasíðunni. Þessar upplýsingar eru unnar reglulega og þótt þær veiti ekki upplýsingar um neyslu gefa þær vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar.

Tölurnar eru reiknaðar í kg/íbúa/ár samkvæmt jöfnunni: fæðuframboð = framleiðsla + innflutningur – útflutningur – önnur not (t.d. dýrafóður). Fæðuframboðið nær í flestum tilfellum til lítið unninnar vöru, t.d. er kjöt gefið upp í heilum skrokkum með beini, fiskur er gefinn upp óslægður en í stöku tilfellum er um fullunnar vörur að ræða, t.d. mjólk, mjólkurvörur og smjörlíki. Tölurnar taka ekki tillit til rýrnunar sem verður við framleiðslu, á lagerum, í verslunum og á heimilum.

Ávextir og grænmeti

Ef litið er á þróun mataræðis árið 2007 kemur í ljós að magnið af ferskum ávöxtum eykst um tæp 4 kg/íbúa og ávaxtavörur um 2,5 kg/íbúa. Aukningu í ávaxtavörum má að stórum hluta rekja til meiri neyslu á ávaxtasafa. Ferskt grænmeti eykst einnig en einungis um 1,7 kg/íbúa. Ennþá er þó langt í land að náð sé 5 skömmtum, eða 500 grömmum, af grænmeti, ávöxtum og safa á dag. Rétt er að vekja athygli á að safi reiknast aldrei sem meira en einn skammtur þótt meira sé drukkið. grænmetisneysla 1960-2007

Mjólk og mjólkurvörur

Minna er af nýmjólk en heldur er aukning á sýrðum vörum unnum úr henni (fita>3 %) á milli ára. Fituminni drykkjarmjólk, léttmjólk og undanrenna, dregst saman og sömuleiðis fituminni sýrðar vörur, sem ekki er góð þróun þar sem æskilegt væri að þessar vörur aukist á kostnað fullfeitra vara. Skyr minnkar heldur milli ára en aukning er í osti. Mælt er með tveimur skömmtum af fitulitlum og lítið sykruðum mjólkurvörum daglega fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri.

Sykur

Sykurinn eykst um 4 kg milli ára og er í rúmum 48 kg/íbúa en hann hafði minnkað um 5 kg árið áður. Trúlega spilar birgðastaða um áramót þarna inn í en sykur er vara sem hefur langt geymsuþol. Sykurneysla á Íslandi er mjög mikil borið saman við önnur Norðurlönd, eða tæplega 930 g á íbúa á viku. Gosdrykkir eiga drjúgan þátt í þessari miklu sykurneyslu en gosdrykkjaneysla er óhóflega mikil hér á landi og var framboðið 151 lítri/íbúa árið 2007. Hins vegar er jákvætt að vatnsdrykkir hafa aukist umtalsvert síðustu ár. Sælgæti stendur nokkuð í stað milli ára en hafði aukist jafnt og þétt til ársins 2005. Gosdrykkir og sælgæti eiga vafalítið sinn þátt í aukinni tíðni offitu hér á landi. Sífellt fleiri rannsóknir renna stoðum undir það að mikil drykkja gosdrykkja og annarra sykraðra svaladrykkja auki líkurnar á ofþyngd og offitu og því er ráðlagt að takmarka neyslu þessara drykkja.

2007_gos_sykur

Kjöt, fugl og fiskur

Kjötneyslan eykst milli ára og er þar aðallega um aukningu á kjúklinga- og svínakjöti að ræða en lambakjötið minnkar heldur. Mest er neyslan á kjúklingakjöti, 24,7 kg/íbúa/ár, en fram að árinu 2007 hefur kindakjöt haft vinninginn í kjötneyslu.

Upplýsingar um fisk eru heldur óáreiðanlegar. Samkvæmt þessum niðurstöðum hefur hann heldur aukist undanfarið ár. Þó þarf að gera enn betur og er landsmönnum ráðlagt að borða fisk sem aðalrétt a.m.k. tvisvar í viku.

Fita

Heildar feitmetisneyslan eykst lítillega árið 2007. Smjör, Smjörvi, Létt og laggott og Klípa breytist lítið en þó er heldur aukning í smjöri og smjörlíki. Olíur og annað feitmeti dregst heldur saman. Þetta er ekki jákvæð þróun því hörð fita (mettuð fita og transfitusýrur) er enn allt of stór hluti fitunnar og veitti samtals um 16% orkunnar samkvæmt niðurstöðum Landskönnunar á mataræði 2002 en ráðlagt er að hún sé að hámarki 10% orkunnar. Því er lögð mikil áhersla á að draga úr neyslu á harðri fitu en velja fremur olíu eða mjúka fitu og jafnframt að stilla neyslu á fitu og feitum matvörum í hóf.

Upplýsingar um orku og orkuefni

Einnig eru birtar upplýsingar um framboð á orku og orkuefnunum, próteini, fitu, kolvetnum og alkóhóli svo og hlutfallslegt framlag orkuefna til orkunnar.

Nánari tölfræðilegar upplýsingar um framboð og sölu matvara

Lýðheilsustöð vekur jafnframt athygli á því að fæðuframboðstölur fyrir öll Norðurlöndin, frá árinu 1990, hafa verið birtar í Norrænni hagtöluárbók (Yearbook of Nordic Statistics) sem hægt er að skoða á vef Hagstofu Íslands þar sem hún er fáanleg.


Fæðuframboð á Íslandi 2006 - Aukning á ávöxtum og grænmeti en minnkun á sykri
Fæðuframboð á Íslandi 2004-2005 - Veruleg aukning í ávöxtum bæði árin
Fæðuframboð á Íslandi árið 2000 - Gosdrykkir aukast ár frá ári en grænmetið stendur í stað.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica