Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Borðum fisk á nýju ári

5.1.2009

Fiskur tvisvar í viku. Smellið á mynd til að stækka. Nú þegar jól og áramót eru að baki, með tilheyrandi stórsteikum og öðrum orkuríkum mat, er um að gera að fagna nýju ári með því að hafa fisk á borðum. Fiskur er nefnilega heilsusamlegur matur fyrir alla aldurshópa.

Fiskur er góður próteingjafi og í honum eru ýmis önnur næringarefni, svo sem selen og joð. Feitur fiskur er einnig auðugur af D-vítamíni og löngum ómega-3 fitusýrum en þessi næringarefni eru í fáum öðrum matvælum en sjávarfangi. Sérstaklega er mikilvægt að fá nóg D-vítamín yfir vetrarmánuðina.

Rannsóknir á heilsufarsbætandi áhrifum sjávarfangs hafa einkum beinst að ómega-3 fitusýrum en bæði feitur og magur fiskur virðast hafa jákvæð áhrif á heilsuna og það eru trúlega fleiri en eitt innihaldsefni þar að verki. Þess vegna er æskilegt að borða bæði feitan og magran fisk.

Sérstaklega þarf að huga að því að börn og ungmenni borði meiri fisk - en fiskneysla þeirra er almennt allt of lítil. (Lesa meira í ,,Hvað borða íslensk börn og ungmenni")

Ráðleggingar um fiskneyslu:    

Að minnsta kosti tvær fiskmáltíðir á viku en gjarnan meira.Ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Smellið á mynd til að panta eintak.
Algengur skammtur af fiski er um 150 grömm og ágætt er að reikna með því að fiskneysla sé að minnsta kosti 300 grömm á viku. Gjarnan má þó borða meiri fisk.
Til viðbótar við fisk sem aðalmáltíð eru harðfiskur ásamt, áleggi og salötum, úr fiski góður kostur. (sjá meira í Ráðleggingar um mataræði og næringarefni).

    

 Veljum ódýrara hráefni
Verðlag á flestri matvöru er hátt þessa dagana en til að hægt sé að borða ráðlagðan skammt af fiski, án þess að kostnaðurinn verði alltof mikill, má velja það sem ódýrast er hverju sinni.
Til dæmis fisk sem er á tilboði og kaupa frosinn fisk í stórmörkuðum og nýta svo afgangana vel. Þá má frysta afganga og seinna má svo útbúa úr þeim plokkfisk. 


Uppskrift af plokkfiski fyrir 4
(úr bæklingnum Borðum meiri fisk!)

400 – 600 g soðinn fiskur
3-4 soðnar kartöflur, afhýddar

Hrærið fiskinn í sundur, stappið og skerið kartöflurnar í bita.

Jafningur:
1 laukur saxaður
3 mtsk matarolía
½ dl hveiti eða heilhveiti
3-4 dl léttmjólk eða fiskisoð
½ teskeið
salt og pipar

Hitið olíu í potti og kraumið laukinn. Sáldrið hveiti yfir laukinn og hrærið. Bætið mjólkinni smám saman útí pottinn, hrærið stöðugt í á meðan. Kryddið með salti og pipar. Blandið fiski og kartöflum saman við og hitið í gegn. Gott er að bera fram soðnar rófur, gulrætur og rúgbrauð með réttinum.

Einnig er til fjöldi af góðum fiskuppskriftum hér á vefsíðu Lýðheilsustöðvar og matreiðslubókunum Af bestu lyst I, II og III.

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica