Auðvelda valið verði holla valið
Hluti af fræðslustarfi Lýðheilsustöðvar er að miðla upplýsingum um hollustu matvæla í þeim tilgangi að auðvelda fólki að velja það sem er hollara fyrir heilsuna framyfir það sem talist getur óhollara. Liður þar í eru fastir pistlar í Morgunblaðinu sem bera heitið Hollráð um heilsuna. Í þessri viku er fjallað um vatn og bragðbætta vatnsdrykki og áhrif þeirra á tannheilsu, ef einhver eru.Við vinnslu greinarinnar voru skoðaðir þeir vatnsdrykkir sem eru á markaðnum hér, bæði innlendir og erlendir, þeim skipt í flokka miðað við innihald og teknar myndir af vatnsflokkunum. Í textanum er svo gerð grein fyrir mismuninum á milli flokkanna og lesendur hvattir til að kynna sér innihaldslýsingu drykkjanna. Þannig er neytendum gert auðveldara að þekkja mismuninn á milli þessara drykkja og velja það sem þeim hentar.
Lesa greinina Bragðbættir vatnsdrykkir - eru þeir allir hollir?
