Síðdegishressing í eftirskólum og á frístundaheimilum
Ráðleggingarnar um síðdegishressingu eru ætlaðar starfsfólki og þeim sem taka ákvarðanir um mataræði barna sem dvelja í eftirskólum og frístundaheimilum á vegum sveitafélaganna. Þessir staðir gegna mjög mikilvægu hlutverki og tækifæri er þar til að skapa það umhverfi sem þarf til að börnin geti borðað hollan og næringarríkan mat eftir skóla.
Miðað er við að síðdegishressingin sé í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um mataræði og næringarefni og ef vel er að verki staðið getur þessi máltíð bætt mikilvægum næringarefnum við daglegt fæði barnanna og stuðlað að betri tannheilsu. Jafnframt er bent á mikilvægi þess að huga vel að hreinlæti við framleiðslu og geymsluþoli matvæla.
Lýðheilsustöð hvetur til þess að í öllum eftirskólum og frístundaheimilum sé skjalið prentað út og farið yfir efnið með starfsfólki. Tilvalið er að láta skjalið síðan hanga uppi, fyrir alla að sjá og kynna sér.
Smellið á myndina hér til hægri til að skoða skjalið.
