Af bestu lyst 3 - hollt, gott og girnilegt
Út er komin matreiðslubókin Af bestu lyst 3 en Lýðheilsustöð, Hjartavernd og Krabbameinsfélagið unnu með bókaforlaginu Vöku-Helgafelli að útgáfu bókarinnar. Nanna Rögnvaldardóttir, sem er landsþekkt fyrir mataruppskriftir sínar, valdi uppskriftirnar í þessa bók en eins og í fyrri bókunum, Af bestu lyst 1 og 2, fara hér saman uppskriftir að hollum og góðum mat sem jafnframt er girnilegur og spennandi.
Samhliða útgáfu Af bestu lyst 3 kemur út endurprentun af fyrstu bókinni í flokknum, Af bestu lyst 1, sem hefur notið mikilla vinsælda frá því að hún kom fyrst út árið 1993 og verið margsinnis endurprentuð síðan. Nýja bókin er full af uppskriftum að einföldum, einkar ljúffengum og nútímalegum réttum sem allir uppfylla ákveðin skilyrði um hollustu og eru ráðleggingar Lýðheilsustöðvar-manneldisráðs um mataræði hafðar að leiðarljósi.
Í samræmi við ráðleggingarnar er lögð áhersla á að nota olíu eða mjúka fitu í hæfilegu magni, í stað harðrar fitu, og hafa mikið og fjölbreytt úrval af grænmeti og grófmeti í og með matnum. Nota sykur og salt sparlega en nota önnur krydd í stað saltsins. Notaðar eru fituminni mjólkurvörur og heilhveiti og hveitiklíð í brauð til að auka trefjamagn – en þrátt fyrir allt þetta bera uppskriftirnar með sér að ekki þarf að vera um neitt meinlætalíf að ræða!
Hverri uppskrift fylgja svo upplýsingar um fjölda hitaeininga í einum skammti og magn orkuefnanna próteins, fitu og kolvetna, auk mettaðrar fitu. Í kaflanum um brauð, kökur og eftirrétti er einnig gefið upp magn viðbætts sykurs og trefja. Ítarlegur inngangskafli er í bókinni eftir Hólmfríði Þorgeirsdóttur, verkefnisstjóra næringar hjá Lýðheilsustöð, þar sem fram koma upplýsingar um allt það helsta sem hafa þarf í huga til að stuðla að heilsusamlegu mataræði.
Matgæðingur velur uppskriftirnar
Eins og fyrr segir er það matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir sem leggur til uppskriftirnar en hér má meðal annars finna uppskriftir að hægelduðum kryddjurtalaxi, fylltum kjúklingabringum, mangókjúklingi með sítrusávaxtasalati, baunabuffi með heitu tómatsalati, sýrlenskum kjötbollum og hollum og girnilegum brauðum og kökum, auk fjölda annarra heilsusamlegra sælkerarétta.
Bókin er seld í öllum bókaverslunum og hjá bókaforlaginu en hægt er að panta ráðleggingarnar hér í gegnum vefsíðuna.
Vaka-Helgafell/Forlagið (smella á tengil til að opna vefsíðu útgáfunnar)
