Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Lykillinn að hollum skólamat - handbækur fyrir leikskólaeldhús og grunnskólamötuneyti

25.8.2008

Skólabörn borða. Smella á mynd til að stækka. Nú þegar líða tekur að hausti og grunnskólar og leikskólar eru að fara í gang eftir sumarfrí vill Lýðheilsustöð minna á hve mikilvægt er að sá matur sem börnum og unglingum stendur til boða sé hollur og næringarríkur. Lýðheilsustöð mælir með því að eldhús í grunn- og leikskólum nýti sér Handbók fyrir skólamötuneyti eða Handbók fyrir leikskólaeldhús sem Lýðheilsustöð gaf út.

Í handbókunum eru hagnýtar ábendingar um hollustu og samsetningu fæðunnar, matseðlagerð, matreiðslu, sérfæði, hreinlæti og innkaup. Einnig er kynnt fyrirmynd að æskilegri samsetningu máltíða sem kölluð er Diskurinn. Auk þessa er í henni tillaga að matseðli ásamt uppskriftum. Handbókunum fylgir líka veggspjald, til að hengja upp í eldhúsinu, með helstu minnispunktum úr bókinni .

Panta handbækur

Eigi skólinn ekki handbók þá er hægt að panta eintak í gegnum vefsíðuna:

Fyrir grunnskóla: http://www.lydheilsustod.is/utgafa/pontunarform/1/362/1

Fyrir leikskóla: http://www.lydheilsustod.is/utgafa/pontunarform/1/1191/1



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica