Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Næring ungbarna á 5 tungumálum

9.6.2008

Forsíða bæklingsins Næring ungbarna. Smella á myndina til að skoða bæklinginn.Lýðheilsustöð hefur látið þýða íslenskan texta fræðsluefnis sem snýr að næringu ungbarna á 5 tungumál. Um er að ræða bæklinginn Næring ungbarna, útgefinn 2003 af heilsugæslunni og Lýðheilsustöð sem nú hefur verið þýddur á ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og taílensku.

Textarnir eru aðgengilegir undir útgefið efni og gert er ráð fyrir að þeir séu prentaðir út á viðkomandi tungumáli og afhentir með íslenska bæklingnum. Bæklingarnir liggja frammi á heilsugæslustöðum en fagfólk fer yfir efnið með foreldrum þegar komið er í ungbarnavernd.

Einnig var tekinn saman stuttur útdráttur úr öllum bæklingunum sem hægt er að afhenda þeim sem eingöngu þurfa á kjarnanum að halda á viðkomandi tungumáli. Útdrátturinn er einnig á íslensku.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica