Mataræði aldraðra - ný handbók
Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar Handbók um mataræði aldraðra sem ætlað er að auðvelda þeim störfin sem vinna við að skipuleggja matseðla og útbúa mat fyrir aldraða eða vinna við hjúkrun aldraðra. Handbókin kemur í handhægri plastmöppu í A4 stærð og fæst endurgjaldslaust.Efni handbókarinnar á jafnt erindi við þá sem vinna á stofnunum fyrir aldraða og þá sem elda mat sem sendur er heim til aldraðra (framleiðslueldhús), einnig starfsmenn félagsmiðstöðva og þjónustuíbúða aldraðra. Efnið byggist á bæklingi sem manneldisráð gaf út á árinu 2001. Í handbókinni eru hagnýtar upplýsingar um samsetningu mataræðis fyrir aldraða, hráefnaval, matreiðsluaðferðir, gerð matseðla, næringarfræði almennt, hreinlæti og innkaup.
Fæði, sem öldruðum stendur til boða á dvalar- og hjúkrunarstofnunum, rétt eins og í heimahúsum, hefur áhrif á heilsu þeirra og líðan. Maturinn þarf ekki aðeins að uppfylla kröfur um næringargildi heldur skiptir ekki síður máli að hann sé bragðgóður og lystugur og fallega fram borinn.
Öldruðum, sem eru við góða heilsu og hreyfa sig daglega, hæfir yfirleitt almennt fæði þar sem tekið er mið af ráðleggingum Lýðheilsustöðvar-manneldisráðs um mataræði og næringarefni. Hætta á næringarskorti eykst hins vegar ef matarlyst minnkar, hvort heldur er vegna líkamlegra eða geðrænna sjúkdóma. Við slíkar aðstæður þarf að gera sérstakar og oft einstaklingsbundnar ráðstafanir varðandi fæðið.
Það er von Lýðheilsustöðvar að handbókin komi í góðar þarfir og auðveldi starfsfólki það mikilvæga starf að bjóða öldruðum hollan og ljúffengan mat.
Hægt er að panta bókina með því að smella á pöntunarformið hér eða hringja í síma 5800900.
(Ath. ekki er gert ráð fyrir að hver stofnun eða fyrirtæki þurfi nema eina möppu - en reynt er að verða við sérstökum óskum um fleiri eintök).
Handbókina er hægt að skoða með því að smella hér.
