Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Vítamín og steinefni - fræðslubanki

27.3.2008

Hnappur fyrir vefsíðu um vítamína- og steinefnafræðslubankann.

Lýðheilsustöð og Matvælastofnun hafa opnað vefsíðu með upplýsingum og fræðslu um helstu vítamín og steinefni: www.lydheilsustod.is/vitamin

Forsíða vefsíðu um vítamín og steinefni, smella á mynd til að stækka. Vítamín og steinefni eru nauðsynleg fyrir vöxt og viðhald heilbrigðs líkama. Upplýsingum og ráðleggingum fræðslubankans er ætlað að hjálpa neytendum við að átta sig á þörf sinni fyrir þessi efni og hvernig hægt er að uppfylla hana með fjölbreyttu fæði.

Á síðunni eru m.a. svör við eftirfarandi spurningum:

  • Hvað eru vítamín?
  • Hvað eru steinefni?
  • Hvað eru ráðlagðir dagskammtar?
  • Hvað gerist ef ekki er neytt nægilegs magns af vítamínum og steinefnum?
  • Hvernig er ástandið á Íslandi?
  • Hámarksskammtar vítamína og steinefna.

Sérstaklega er fjallað um A-vítamín, beta-karótín, D, E, C, B6 og B12 vítamín, þíamín, ríbóflavín, níasín og fólat og steinefnin kalk, járn, joð og selen.


Samstarf tveggja stofnana
Matvaelastofnun, lógó. Smella á merkið til að opna vefsíðu stofnunarinnar. Efni síðunnar er unnið af starfsmönnum Matvælastofnunar og Lýðheilsustöðvar:
Brynhildur Briem, Matvælastofnun
Zulema Sullca Porta, Matvælastofnun og Hólmfríði Þorgeirsdóttur, Lýðheilsustöð.

Hnappur fyrir vefsíðuna

Hægt er að nota hnappinn (myndina) efst á síðunni sem hnapp í vítamínsíðuna vilji menn hafa tengingu í hana á eigin vefsíðu.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica