Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

HOLDAFAR - hagfræðileg greining

23.11.2007

Ofþyngd eða offita er sá heilsufarskvilli sem í auknum mæli hrjáir íbúa hins vestræna heims, Ísland þar meðSmella á auglýsinguna til að stækka. talið því meirihluti fullorðinna Íslendinga er yfir kjörþyngd. En hvaða hagfræðilegu áhrif á samfélagið hafa þeir lifnaðarhættir íbúanna sem orsaka þennan kvilla? Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, heilsuhagfræðingur, leitar svara við þessari spurningu, og fleirum er snerta holdafar, í nýútkominni bók sinni Holdafar – hagfræðileg greining, sem var að koma út kom á vegum Lýðheilsustöðvar. Kynning verður í Norræna húsinu í hádeginu mánudaginn 26. nóvember.

Lýðheilsustöð fól Tinnu að gera heilsuhagfræðilega úttekt á offituvanda Íslendinga, orsökum og mögulegum úrlausnum og bókin er afrakstur þeirrar vinnu. Efni bókarinnar er skipt í 8 kafla en að auki er formáli og skrár yfir myndir og rammagreinar á undan bókarköflunum og skrár yfir hugtök og heimildir í bókarlok. Heimurinn
Efnið skiptist í: inngang, sjónarhorn hagfræðinnar, orsök offituvandans, kostnaður samfélagsins vegna ofneyslu og kyrrsetu fólks, áhrif á einstaklinginn sjálfan, holdafar barna út frá hagfræðilegu sjónarmiði, hugsanleg úrræði og í lokin koma fram niðurstöður og samantekt.

Í samantekt kemur m.a. fram hægt sé að stöðva framgang og koma í veg fyrir ofþyngd með breyttri hegðun. Hagfræðin geti varpað ljósi á þættina sem valda þyngdaraukningu auk þess að spá fyrir um hvernig velferð geti breyst við aðgerðir stjórnvalda. Höfundur dregur þar sérstaklega fram sjö tillögur að aðgerðum til að taka á þessum vanda.

Tillögur. Smella á mynd til að stækkaBókin er skrifuð með það í huga að hún gagnist ýmsum samfélagshópum; fyrsta lagi þó stjórnvöldum við stefnumótun og ákvarðanatöku þeirra á sviði heilbrigðismála. Þá væntir höfundur þess að bókin nýtist fagfólki á sviði heilbrigðisvísinda, atferlisfræða og annarra félagsvísinda. Einnig áhugafólki og starfsfólki heilsufyrirtækja sem vinnur beinlínis við það að sporna gegn offitu fólks. Síðast en ekki síst námsmönnum í ýmsum fögum, s.s. heilsuhagfræði, lýðheilsunámi og félagsvísindum. Höfundur gerir ráð fyrir að stærsti hluti lesenda séu ekki hagfræðingar að mennt og við það hafi hann miðað málfar og efnistök, að auki eru 16 myndir í bókinni sem skýri umfjöllunarefnið frekar. Fyrir þá sem eru vel að sér í hagfræðinni koma þó fram nánari útskýringar á aðferðum, hugtökum og kenningum, s.s. í rammagreinum og hugtakaskrá.

Um höfundinn

Höfundur bókarinnar, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, er doktor í hagfræði. Hún hefur umsjón með meistaranámi í heilsuhagfræði í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands auk þess sem hún starfar sem sérfræðingur við Hagfræðistofnun skólans. Hægt er að hafa samband við höfund með því að senda henni tölvupóst: ta@hi.is

Bókin seld í bókaverslunum

Bókin Holdafar - hagfræðileg greining fæst í öllum helstu bókaverslunum landsins en óski fleiri bóksalar eftir að fá hana í sölu eru þeir beðnir að snúa sér til Jóns Óskars Guðlaugssonar, s. 5800 922 eða senda pöntun beint á: pantanir@lydheilsustod.is



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica