Aðgerðaáætlun á sviði matvæla- og næringarstefnu 2007-2012
Aðgerðaáætlunin var samþykkt á fimmtugasta og sjöunda fundi svæðisnefndar alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar –WHO- í Evrópu, sem haldinn var í Belgrad dagana 17.-20. september s.l. Aðgerðaráætlunin leysir af hólmi fyrri stefnu sama efnis.
Þrátt fyrir viðleitni til þess að bæta næringu og öryggi matvæla í aðildarríkjunum hefur sjúkdómabyrðin vegna lélegrar næringar farið vaxandi undanfarin ár. Í aðgerðaáætluninni er lögð áhersla á að ríkisstjórnir landanna leiði verkefnið með því að vinna aðgerðaáætlanir fyrir löndin, stýri samvinnu þeirra sem að aðgerðaáætluninni koma og fylgi eftir og meti áhrif aðgerða. Markmið koma fram í aðgerðaáætluninni og sérstakar aðgerðir á sviði næringar og matvælaöryggis sem mælst er til að löndin hryndi í framkvæmd.
Aðgerðirnar ná yfir mörg svið og taka til hins opinbera (ríkis og sveitarfélaga), matvælaiðnaðarins, starfsgreinasambanda og frjálsra félagasamtaka. Megin áherslur í aðgerðaáætluninni eru að styðja við heilsusamlegt mataræði og fæðuöryggi strax frá fæðingu, tryggja örugg og holl matvæli og sjálfbært framboð fæðu, veita neytendum alhliða fræðslu, hvetja til samþættra aðgerða, styrkja næringu og fæðuöryggi innan heilbrigðisgeirans og að fylgjast með framförum og meta árangur aðgerða.
Frétt Heilbrigðisráðuneytisins af fundinum
Second WHO European Action Plan for Food and Nutrition Policy 2007-2012
