Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Lýðheilsustöð fagnar framtaki verslunarinnar

17.9.2007

Forsvarsmenn matvöruverslana hafa undirritað yfirlýsingu þess efnis að verslunarmenn hvetji til aukinnar hollustu og betri lífshátta með neyslu hollari fæðu og aukinni hreyfingu. Undirritunin fór fram á vel sóttum morgunverðarfundi sem bar yfirskriftina ,,Aukið heilbrigði – ábyrgð atvinnulífsins". Lýðheilsustöð fagnar þessu framtaki Samtaka verslunar og þjónustu.

Meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingunni er að verslunin telji mikilvægt að stuðla að lausn þess vanda að þjóðin er of þung með auknu framboði hollra matvara og upplýsingum til neytenda og starfsmanna.

fimm_a_dag

Hvað getur verslunin gert til að vinna að þessu markmiði?

  • Innkaup og sala hollra matvara og áberandi staðsetning þeirra í sölurými verslana.
  • Sérstök merking hollra vara sem vekur athygli neytenda á þeim.
  • Upplýsingar og fræðsla um hollar matarvenjur í verslunum, auglýsingum, fjölmiðlum, á vefsíðum o.s.frv.
  • Hvatning til aukinnar hreyfingar.
  • Átaksverkefni til að auka hreyfingu og holla lífshætti.
  • Kostun verkefna sem stuðla að sama markmiði.
    (úr yfirlýsingu Samtaka verslunar og þjónustu sem undirrituð var 13.9. 2007)

Merking matvæla

Jónína Þ. Stefánsdóttir, frá Umhverfisstofnun, hélt erindi um merkingar á matvælum og hversu snúið það geti verið fyrir viðskiptavinina að sjá og meta hvort vara teljist holl. Hún sagði frá og sýndi að víða í nágrannalöndum okkar er matvara merkt í samræmi við hollustu þannig að neytendur sjá merkinguna fljótt og örugglega. Hún rakti hvað þurfi til svo merkja mætti vörur á þennan hátt hér á landi en þar þarf að koma til vilji allra hagsmunaaðila.

Glærur úr fyrirlestri Jónínu má sjá hér (PDF-skjal).



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica