Hvaða efni eru í matnum?
Nú er á auðveldan hátt hægt að nálgast upplýsingar hjá Matís um efni sem eru í algengum matvælum. Upplýsingarnar eru í íslenska gagnagrunninum ÍSGEM og segja til um allt að 45 efni í um 900 fæðutegundum.Aðgangur að gagnagrunninum er á vefsíðu Matís www.matis.is/ISGEM/is og þar má skoða fyrirliggjandi upplýsingar um efni í þeim fæðutegundum sem óskað er eftir að fá vitneskju um. Meðal þeirra efna, sem tilgreind eru, eru prótein, fita, kolvetni, vatn, orka, vítamín og steinefni og fjögur óæskileg efni; kvikasilfur, blý, kadmín og arsen.
| Dæmi um efni: | |
|---|---|
![]() |
![]() |
Á vefsíðunni eru einnig skýringartextar til að auðvelda aðgang og nýtingu gagnanna. Samkvæmt upplýsingum frá Matís er þetta fyrsti liður í áætlun matís sem miðar að því að upplýsa landsmenn almennt, atvinnulíf og sérfræðinga um efnainnihald matvæla á einfaldan og aðgengilegan hátt. Næstu skref eru að bæta við möguleika á að leita að upplýsingum um aðskotaefni, sérstökum töflum um ákveðin næringarefni og loks verður Matarvefnum (www.matarvefurinn.is) komið fyrir á síðunni en þar er hægt að reikna út næringarefni matvælum.


