Notum olíu við matseld
Staðreyndin er sú að flestar jurtaolíur henta vel til pönnusteikingar þar sem þær þola hita nokkuð vel, t.d. sojabaunaolía, rapsolía (canola olía), ólífuolía, sólblómaolía, jarðhnetuolía og maísolía. Ólífuolía hentar einnig mjög vel í kalda rétti, út á salöt eða pasta eða með brauði.
Vert er að hafa í huga að þótt hollusta fitu sé breytileg eftir tegund og uppruna er öll fita jafnorkurík. Því er hvatt til þess að stilla neyslu á fitu og feitum matvörum í hóf. Til að minnka notkun á fitu við matseld heimafyrir getur verið góð hugmynd að ofnsteikja eða sjóða matinn í stað þess að steikja hann á pönnu eða djúpsteikja. Ef hins vegar er ákveðið að steikja matinn er ráðlagt að nota olíu eða mjúka fitu í stað harðrar fitu. Olía eða mjúk fita er yfirleitt á fljótandi formi við stofuhita og því auðvelt að þekkja hana. Mælt er með því að nota mismunandi gerðir af olíum, þ.e. bæði einómettaðar og fjölómettaðar olíur, þar sem þær gefa okkur mismunandi samsetningu næringarefna. Ólífuolía og rapsolía eru auðugar af einómettaðri fitu. Maísolía, sojaolía og sólblómaolía eru dæmi um olíur með háu hlutfalli af fjölómettaðri fitu.
Lesið meira um fitu og fleira í Ráðleggingum um mataræði.
