Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Frá fundi um samstarf um meira framboð af hollum mat

30.3.2007

Miðvikudaginn 28. mars buðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð og Samtök iðnaðarins til morgunverðarfundar á hótel Nordica þar sem til umfjöllunar var samstarf um aukið framboð á hollum matvörum, markaðssetning, vöruþróun og skammtastærðir.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Siv Friðleifsdóttir setti fundinn og lýsti yfir ánægju sinni með góða mætingu á fundinn en hátt í 140 manns voru í salnum. Ráðherra kvaðst telja að á næstu árum yrði viðhorfsbreyting til mataræðis hjá íslensku þjóðinni. Hún sagðist vonast til að svokölluð nammihorn í stórmörkuðum yrðu sýnd á Þjóðminjasafninu eftir nokkur ár, sem dæmi um liðna tíð í neysluvenjum þjóðarinnar.

matvaela1

Anna Elísabet Ólafsdóttir forstjóri Lýðheilsustöðvar flutti erindi um skammtastærðir matvæla og tók dæmi um það hvernig matarksammtar og einingar hafa verið að stækka á undanförnum árum. Anna talaði einnig um að neysla harðrar fitu hefur minnkað hér á landi á undanförnum árum en lagði þó áherslu á að hún væri enn allt of mikil. 

Sjá glærur með erindi Önnu

 

Ragnheiður Héðinsdóttir, matvæðafræðingur hjá Samtökum iðnaðarins flutti erindi sem fjallaði m.a. um vöruþróun með tilliti til næringar hjá matvælaframleiðendum og stefnu matvælaiðnaðarins á sviði næringar.

Sjá glærur með erindi Ragnheiðar

 

Iðunn Geirsdóttir, gæðastjóri Myllunnar var með erindi um heilsustefnu og aðgerðir Myllunnar á sviði næringar og vöruþróunar.

Sjá glærur með erindi Iðunnar

 

Markaðssetning óhollrar matvöru var umfjöllunarefni Friðriks Larsen, markaðsfræðings og lektors við Háskólann í Reykjavík.

Sjá glærur með erindi Friðriks

 matvaela2

Stefán Jóhannsson, gæðastjóri Subway á Íslandi flutti að lokum erindi um hvernig skyndibitastaðir geta bætt framboð á hollum mat. Að fyrirlestrunum loknum fóru fram pallborðsumræður þar sem Ragnheiður Haraldsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Anna E. Ólafsdóttir forstjóri Lýðheilsustöðvar, Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Samtökum iðnaðarins, Guðrún E. Gunnarsdóttir formaður Matvæla- og næringarfræðingafélags Íslands og Friðrik Larsen lektor við Háskólann í Reykjavík, sátu fyrir svörum.

 

Fundarstjóri var Sigmar Guðmundsson, sjónvarpsmaður.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica