Transfitusýrur
Transfitusýrur hafa verið talsvert í umræðunni að undanförnu. Lýðheilsustöð hefur tekið saman nokkur áhersluatriði sem vonandi gefa svör við helstu spurningum sem vaknað hafa í kjölfar umræðunnar.
Yfirlit
Sjá einnig algengar spurningar og svör
Hvað eru transfitusýrur?
Transfitusýrur myndast þegar olía er hert. Herðing olíu er aðferð sem notuð er í matvælaiðnaði til að gera fitu harðari þannig að vörurnar fái ákveðna eiginlega sem sumir telja æskilega í iðnaði. Transfitusýrur myndast einnig á náttúrulegan hátt í vömb jórturdýra, þegar bakteríur sem þar er að finna breyta ómettaðri fitu í transfitusýrur. Að lokum geta transfitusýrur myndast þegar olía er hituð við mjög háan hita.
Hvaða áhrif hafa transfitusýrur á heilsuna?
Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að neysla á matvörum sem innihalda transfitusýrur eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, einkum vegna áhrifa þeirra til hækkunar á LDL- kólesteróli í blóði (slæma kólesterólinu) og lækkunar á HDL-kólesteróli (góða kólesterólinu).
Mettuð fita er einnig vel þekktur áhættuvaldur fyrir hjarta- og æðasjúkdóma, líkt og transfitusýrur, en þó eru þær síðarnefndu taldar skaðlegri. Samkvæmt ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) þá er æskilegt að magn transfitusýra fari ekki yfir 2 g á dag.
Ekki er hægt að segja til um hvort áhrif transfitusýra, sem myndast á náttúrulegan hátt í vömb jórturdýra, séu önnur á heilsuna heldur en áhrif transfitusýra sem myndast þegar fita er hert. Einkum vegna þess að rannsóknir hafa ekki verið gerðar á þessu sviði.
Í hvaða matvörum er transfitusýrur helst að finna?
Hert fita er notuð við framleiðslu margra matvæla og því er transfitusýrur víða að finna. Einkum er um að ræða matvörur þar sem bökunarsmjörlíki eða djúpsteikingarfeiti, sem inniheldur herta fitu, er notað við framleiðslu.
Vörur sem mögulega innihalda transfitusýrur eru smjörlíki, steikingarfeiti, kökur, kex, franskar kartöflur og annar djúpsteiktur skyndibitamatur, örbylgjupopp, snakk og sælgæti og getur í sumum þessara vara verið umtalsvert magn transfitusýra.
Frá náttúrunnar hendi er transfitusýrur að finna í vörum eins og rjóma og smjöri.
Hvernig er hægt að vita hvort vara inniheldur transfitusýrur?
Ekki er skylda að hafa næringargildismerkingu á matvörum hér á landi, nema þegar fullyrt er um næringarfræðilega eiginleika í viðkomandi vöru. Hins vegar er hægt að skoða innihaldslýsingu vörunnar til að fá upplýsingar um hvort varan innihaldi transfitusýrur. Ef eitthvað af eftirtöldu er nefnt í innihaldslýsingu matvæla þá er nær víst að varan innihaldi transfitusýrur: hert fita/jurtafita/jurtaolía að hluta.
Á ensku er þetta nefnt ,,partially hydrogenated oil/fat". Á dönsku ,,delvis hærdet fedt, delvis hydrogeneret fedt, partielt hærdede olier".
Neysla transfitusýra á Íslandi
Samkvæmt landskönnun á mataræði árið 2002 þá borðuðu Íslendingar um 3,5 g að meðaltali af transfitusýrum á dag og veittu þær um 1,4% orkunnar. Það er nokkuð frá þeim mörkum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur æskilegt en það er um 2 g að hámarki á dag.
Neysla á transfitusýrum hefur minnkað um tæplega þriðjung frá 1990. Vegur þar þyngst minni smjörlíkisneysla og það að samsetningu smjörlíkisins hefur verið breytt. Stefnt er að því að minnka hlut hertrar fitu í smjörlíki ennfrekar á árinu.
Rétt er að benda á að um tíu sinnum meira var neytt af mettaðri fitu en transfitusýrum, samkvæmt fyrrnefndri könnun, og er það mun meira en ráðlagt er. Þó að transfitusýrur séu óæskilegri en mettuð fita eru áhrif mettuðu fitunnar á heilsuna ekki síður alvarleg þar sem hennar er neytt í svo miklu magni.
Mikilvægt er einnig að hafa í huga að þótt transfitusýrum yrði útrýmt úr ákveðnum fæðutegundum þá væri ennþá sá möguleiki fyrir hendi að varan innihéldi mettaða fitu og það ef til vill í miklu magni.
Ráðleggingar um fituneyslu
Ráðlagt er að minnka neyslu á harðri fitu, þ.e. bæði mettaðri fitu og transfitusýrum, en nota þess í stað mjúka fitu eða olíur. Jafnframt er ráðlagt að stilla neyslu á fitu og feitum matvörum í hóf.

