Fiskuppskriftabæklingur gefinn á hvert heimili í landinu
Borðum meiri fisk! er heitið á nýjum bæklingi með 20 ljúffengum fiskuppskriftum sem Lýðheilsustöð hefur látið útbúa og gefur á hvert heimili í landinu. Þetta er liður í að stuðla að meiri fiskneyslu í landinu en hún fer stöðugt minnkandi sérstaklega hjá ungu fólki. Uppskriftabæklingurinn og átakið var kynnt í dag en pósturinn ber síðan bæklinginn í hvert hús í landinu í þessari viku.Lýðheilsustöð fékk Landssamband smábátaeigenda til liðs við sig og kynnti Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
sambandsins, átakið ásamt Önnu Elísabetu Ólafsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar, á Sægreifanum við Geirsgötu í morgun. Einnig var viðstödd Ólöf Árnadóttir, sem kom með hugmyndina að bæklingnum til Lýðheilsustöðvar. Ýmsum góðum gestum var boðið á kynninguna, auk þeirra sem komu að gerð bæklingsins, m.a. fisksölum, ungu fólki og fjölmiðlum. Boðið var upp á einn fiskréttanna í bæklingnum - Sjávarréttasúpu - sem Sægreifinn matreiddi, ásamt snittum með áli, laxi og síld. Fundargestir voru mjög ánægðir með réttina en þeirra á meðal voru nokkrir unglingar úr Austurbæjarskóla en með átakinu Borðum meiri fisk! er vonast til að stuðla megi að því að unga fólkið læri að meta betur þann góða og holla mat sem fiskurinn er.
Hér á Íslandi eigum við kost á mjög góðum fiski og hráefnið sem við notum í fiskrétti á að vera fyrsta flokks. Áherslu er því lögð á að fiskurinn sem notaður er í réttina sé sem allra ferskastur, því ef fiskurinn sjálfur er ekki góður þá verður rétturinn það ekki heldur, sama hversu ljúffeng sósa eða annað er haft með fiskinum. Í bæklingnum eru því gefin nokkur ráð um það hvernig þekkja megi ferskan fisk.
Fiskmáltíð á borðum að minnsta kosti tvisvar í viku
Vonast er til að með því að minna reglulega á fiskinn og fiskuppskriftirnar í bæklingnum þá verði fleiri fiskmáltíðir á borðum landsmanna – lagt er til að minnsta kosti tvisvar sinnum í viku.
Fiskneysla á Íslandi hefur dregist verulega saman, sérstaklega hjá ungu fólki. Þetta er áhyggjuefni því fiskur er mjög hollur og margir telja að það sé einmitt fiskinum og lýsinu að þakka hversu heilsuhraust og langlíf þjóðin hefur verið. Þjóðin þarf að bæta úr þessu með því að vera dugleg að matreiða fisk á sem fjölbreyttastan hátt. Fiskréttirnir í bæklingnum eru hollir en einnig fjölbreyttir, allt frá hversdags- til veislumáltíðar, og miðast við að allir fjölskyldumeðlimir finni „fiskréttinn sinn“.
Gott samstarf við fisksala
Smábátaeigendur koma daglega með fisk að landi og hjá fisksölum um allt land gefst kostur á að kaupa
ferskan fisk hjá fisksölum landsins. Auk þess að senda þeim bæklinginn þá gefur Lýðheilsustöð þeim upplýsingar um hvaða fiskréttur verður auglýstur í hverri viku, næstu 20 vikurnar, en á hverjum sunnudegi verður birt ein uppskrift úr bæklingnum í Fréttablaðinu. Fisksalar geta því lagt átakinu lið með því að hafa á boðstólunum þann ferska fisk sem þarf í rétt vikunnar - eða jafnvel haft hann tilbúinn til eldunar.
Það er von Lýðheilsustöðvar og Landssambands smábátaeigenda að Borðum meiri fisk!-átakið mælist vel fyrir og stuðli að því að fiskur sé oftar á borðum landsmanna – að minnsta kosti tvisvar sinnum í viku - ekki síst heilsunnar vegna.
Stutt samantekt um fiskneyslu á Íslandi
Hvað borða íslensk börn og unglingar?






