Athygli vakin á stækkandi matarskömmtum
Sumir eru líka að gæta að aukakílóunum, aðrir ekki. En þrátt fyrir aukna fjölbreytni matvæla þá hefur meira framboð líka hliðarverkanir. Svo virðist sem samfara því hafi skammtastærðir stækkað gífurlega en því geri neytendur sér ekki alltaf góða grein fyrir. Rétt og hollt mataræði felur nefnilega líka í sér eðlilegar skammtastærðir.
Rétt og hollt mataræði byggir á eðlilegum matarskömmtum. Of stórir skammtar eða of litlir skammtar geta haft til lengri tíma áhrif á heilsu. Neytendur, sem um lengri tíma hafa verið lokkaðir til magnkaupa með
fjárhagslegum gylliboðum, þurfa heilsunnar vegna að læra upp á nýtt hvað er eðlileg skammtastærð. Þessi grein er hluti af greinaflokki sem er samstarfsverkefni Lýðheilsustöðvar og Morgunblaðsins. Í þessum greinum eru skoðuð nokkur íslensk matvæli á markaðnum og hvernig skammtastærðir hafa hafa breyst á síðustu 15-20 árum.
