Mjúk fita í stað harðrar
nýverið gefið út Ráðleggingar um mataræði, sem landsmenn er hvattir til að kynna sér, en í ljósi umræðunnar að undanförnu vill stöðin vekja sérstaka athygli á því að í ráðleggingunum er lögð áhersla á að nota olíu eða mjúka fitu í stað harðrar fitu og jafnframt að stilla neyslu á fitu og feitum matvörum í hóf.Olía eða mjúk fita er yfirleitt á fljótandi formi við stofuhita og er því auðvelt að þekkja hana. Dæmi um slíka fitu eru ólífuolía, sólblómaolía, maísolía, rapsolía, sojaolía og jarðhnetuolía. Mælt er með því að nota mismunandi gerðir af olíum þar sem þær gefa okkur mismunandi samsetningu næringarefna. Sömuleiðis er fitan í fiski og lýsi mjúk og einnig í hnetum, möndlum, fræjum og lárperu (avókadó).
Hörð fita leynist víða
Hins vegar er harða fitu t.d. að finna í hörðu smjörlíki (á föstu formi við stofuhita), smjöri, rjóma og öðrum feitum mjólkurvörum ásamt feitu kjöti svo og iðnaðarframleiddum vörum á borð við bakarísvörur, kex, franskar kartöflur, flögur og sælgæti.
Sumar tegundir af smjörlíki eru úr tiltölulega mjúkri fitu. Það er þó ekki nóg að smjörlíkið sé gert úr jurtafeiti, því að jurtafeiti getur verið hörð engu síður en fita úr dýraríkinu. Nægir þar að nefna kókosfeiti eða palmín sem er mjög hörð fita.
Lesið meira um fitu og fleira í Ráðleggingum um mataræði.
Panta Ráðleggingar um mataræði.
