Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Er fiskur af Íslandsmiðum mengaður?

29.11.2006

fiskur-smella á mynd til að stækkaRannsóknarstofnun fiskiðnaðarins hefur undanfarin ár fylgst náið með magni mengunarefna - þungmálma og þrávirkra lífrænna efna - í fiski af Íslandsmiðum. Þessi efni mælast ætíð langt undir þeim viðmiðunarmörkum sem sett hafa verið af Evrópusambandinu í íslensku sjávarfangi, sem við borðum hvað mest af, t.d. ýsu, rækju, þorski, grálúðu, laxi, smálúðu, lúðu (minni en 1m eða 12 kg), ýmsum kolategundum og svo mætti lengi telja.

Enginn vafi er á því að kostir fiskneyslu og jákvæð áhrif hennar á heilsu manna vega langtum þyngra en neikvæð áhrif af völdum mengunar sem eru hverfandi. Ekki þarf heldur að hafa áhyggjur af lýsi hér á markaði þar sem aðskotaefni eru hreinsuð úr vörunni við framleiðslu.
Lesið nánar ráðleggingar um fiskneyslu í riti Lýðheilsustöðvar Ráðleggingar um mataræði

Sjá einnig skýrslu Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins: http://www.rf.is/media/utgafa//Skyrsla_22-06.pdf

Fiskur á meðgöngu

Þrátt fyrir að fiskur sé mikil hollustufæða þarf á meðgöngu að huga að því hvernig fiskur verður fyrir valinu. Á meðgöngu ber að varast allan hráan fisk vegna baktería sem hugsanlega geta leynst í honum og eins þarf að hafa í huga að í einstaka sjávarafurðir safnast aðskotaefni, s.s. þungmálmar og þrávirk lífræn efni, sem geta haft neikvæð áhrif á þroska fósturs og ungbarna.
Þessar tegundir eru þó nokkuð sjaldgæfar á borðum landsmanna því hér er helst um að ræða stóra ránfiska, tannhvali og egg sjávarfugla. Algengar fisktegundir, svo sem ýsu, þorsk, smálúðu, steinbít, skötusel, silung og lax, er hins vegar alltaf sjálfsagt að borða og ekki má gleyma að fiskur og lýsi eru einmitt sérstaklega mikilvæg á meðgöngu þar sem að ómega-3 fitusýrur í sjávarfangi eru nauðsynlegar fyrir þroska miðtaugakerfis fóstursins.
Sjá nánari umfjöllum um matvæli sem ber að forðast á meðgöngu í bæklingum Matur og meðganga.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica