Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Ráðleggingar um mataræði og næringarefni - fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri

20.11.2006

Ráðlegginar um mataræði, forsíða bæklingsKominn er út á vegum Lýðheilsustöðvar bæklingurinn Ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar eru ætlaðar fullorðnum og börnum frá tveggja ára aldri og eiga þær að auðvelda fólki að velja fæði í samræmi við næringarefna- og orkuþörf sem og ráðlagða dagskammta af ýmsum vítamínum og steinefnum.

Veggspjald, Ráðleggingar um mataræði, 2006, smella á mynd til að stækkaMatur hefur áhrif á andlega líðan og líkamlegt heilbrigði. Í ráðleggingunum er lögð áhersla á að fólk njóti vel samsettrar og fjölbreyttrar fæðu í hæfilegu magni. Ráðleggingarnar eru endurskoðuð útgáfa fyrri manneldismarkmiða, þar sem tekið er mið af nýjum vísindarannsóknum á sviði næringar og heilsu og niðurstöðum kannana á mataræði Íslendinga, norrænum næringarráðleggingum og ráðleggingum annarra þjóða.
Ráðleggingunum er einnig ætlað að vera til viðmiðunar fyrir skóla, heilsugæslu, matvælaframleiðendur, stór eldhús og aðra sem annast fræðslu um næringarmál eða hafa áhrif á mataræði almennings.

Einnig var gefið út veggspjald með myndunum úr bæklingnum, í A2 stærð, en þar kemur einnig fram kjarni ráðlegginganna.
Til að vekja athygli landsmanna á ráðleggingunum - auðvitað með von um að sem flestir kynni sér þær og fari eftir - verða þær auglýstar með ýmsu móti á næstunni.

Bæklingurinn og veggspjaldið Ráðleggingar um mataræði og næringarefni fást endurgjaldslaust hjá Lýðheilsustöð og hægt er að skoða og panta bæklinginn á heimasíðu stöðvarinnar sem og veggspjaldið.

Nánari upplýsingar veita: Hólmfríður Þorgeirsdóttir, s. 5 800 900, og Anna Sigríður Ólafsdóttir, s. 868 4830.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica