Gróf brauð - góð heilsa
Í könnun sem gerð var á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum á neyslu grænmetis, ávaxta
, brauða og fiski kom í ljós að Íslendingar borða lang minnst þessara þjóða af grófu, trefjaríku brauði. Lýðheilsustöð hvetur til daglegarar neyslu slíkra matvæla í ráðleggingum um mataræði og nú hafa bakarameistarar lagt þar hönd á plóginn með því að leggja áherslu á að vera með gott úrval af slíkum brauðum í verslunum sínum. Einnig hafa þeir gefið út hefti með upplýsingum um hollustu grófs brauðmetis. Lýðheilsustöð þakkar Landssambandi bakarameistara fyrir þetta góða framtak.
Heilkornavörur eru næringaríkar
Kornvörur, sérstaklega vörur úr heilu korni, eru næringarríkur matur. Í þeim er fjöldi næringarefna sem eru mikilvæg fyrir heilsuna, t.d. trefjar, ýmis B-vítamín, E-vítamín og steinefni auk annarra hollefna. Rannsóknir renna undir það stoðum að neysla á grófu kornmeti dragi úr líkunum á hjarta- og æðasjúkdómum, skertu insúlínnæmi og sykursýki af gerð 2, háþrýstingi og sumum tegundum krabbameina. Trefjaríkur matur, svo sem heilkorna vörur, skiptir einnig miklu máli til að meltingin sé góð. Trefjaríkar vörur geta líka hjálpað til við að halda þyngdinni innan eðlilegra marka þar sem þær veita mettunartilfinningu og fyllingu. Æskilegt er að fæðutrefjar séu að minnsta kosti 25 grömm á dag miðað við 2400 kílókaloría fæði (2400 kcal samsvara 10 megajoulum, MJ).
Æskilegt er að auka hlut grófs kornmetis
Aukin neysla grófra brauða og annars grófs kornmatar er talin æskileg með hollustusjónarmið í huga. Neysla allra kornvara hefur reyndar aukist nokkuð síðasta áratug og brauðneysla er nú sambærileg að magninu til og hjá mörgum nágrannaþjóðum okkar. Mjög gróf brauð (meira en 6 grömm trefjar í 100 grömmum brauðs), eins og rúgbrauð, maltbrauð og fleiri tegundir, sem eru dagleg og algeng neysluvara í flestum nágrannalöndum, eru þó sjaldséð á borðum okkar Íslendinga. Hér á landi eru hvers konar kökur og kex í staðinn mun algengari en á hinum Norðurlöndunum. Önnur sérstaða okkar Íslendinga felst í því hversu mikið af brauðinu er á formi pítsu og sambærilegra rétta. Því er tilefni til að leggja áherslu á að velja gróf brauð í stað sætabrauðs og fínna brauða.
