Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Gerum fiskinn aftur að þjóðarrétti

15.9.2006

fiiskur_2Fiskneysla landsmanna fer stöðugt minnkandi og er það orðið áhyggjuefni. Ungt fólk borðar almennt sérlega lítið af fiski. Ýmislegt er verið að gera til að hvetja landsmenn til að borða meiri fisk og þessa dagana stendur yfir hátíðin Fiskirí en þar leggja um 80 veitingahús sérstaka áherslu á gómsæta fiskrétti.

Fiskirí er hátíð á vegum sjávarútvegsráðuneytisins í samstarfi við Klúbb matreiðslumeistara áSmella á_mynd til að stækka Íslandi. Slegið verður upp viðamikilli fiskiveislu á um 80 veitingastöðum landsins helgina 15.-17. september 2006 og er ætlunin að hvetja bæði unga og aldna til að fara út að snæða sjávarafurðir meðan á hátíðinni stendur.

Eins og fyrr segir er áhyggjuefni hversu lítinn fisk ungt fólk borðar og á döfinni er útgáfa matreiðslukvers með góðum fiskréttum sem ætlunin er að afhenda nemum í útskriftarárgangi framhaldsskólanna.

Fræðsla um hollustu fiskmetis

Lýðheilsustöð leggur sitt á vogaskálarnar til að hvetja landsmenn til að borða meiri fisk. Jafnt og þétt er fræðsla sem tengist hollustu fiskjar og sjávarfangs og verður svo áfram. Í tilefni af Fiskiríi birtist í Morgunblaðinu 14. september grein eftir Hólmfríði Þorgerisdóttur, verkefnissjóra næringar hjá Lýðheilsustöð, undir heitinu ,,Borðum meiri fisk - hollustunnar vegna" þar sem m.a. kemur fram að árið 2002 var svo komið hér á Íslandi að fiskneyslan var aðeins 40 grömm á dag, sem er 30% minnkun frá árinu 1990. Aðaláherslan í greininni er þó á hversu hollur matur fiskurinn er og hvers vegna við eigum helst að gera hann að þjóðarrétti okkar á ný.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica