Fiskneyslan minnkar
Fiskur hefur á áranna rás verið sannkölluð heilsufæða fyrir Íslendinga. Hann er fitulítill en próteinríkur og það sem meira er um vert, hann hefur að geyma hollar fitusýrur af omega-3 gerð. Nýlegar faraldsfræðilegar rannsóknir sýna enn fremur að fiskneysla veitir umtalsverða vernd gegn kransæðasjúkdómum. Þessar rannsóknir sýna að 1-2 fiskmáltíðir á viku minnka áhættu kransæðasjúkdóma um 40-50% í hópum þar sem áhættan er að öðru leyti há, t.d. vegna hækkaðs LDL kólesteróls í blóði og/eða reykinga. Fiskneysla virðist hins vegar ekki veita aukna vernd ef áhættan er lítil fyrir, t.d. hjá fólki sem hefur lágt kólesteról í blóði, er með lágan blóðþrýsting og reykir ekki. Eins virðist meiri fiskneysla en 2 máltíðir á viku ekki auka verndina enn frekar.
Margt bendir til þess að fiskneyslan fari minnkandi hér á landi. Rannsókn á barnshafandi konum, sem Manneldisráð vinnur að í samvinnu við miðstöð mæðraverndar og Háskóla Íslands, sýnir t.d. að konurnar borða um helmingi minna af fiski en jafnöldrur þeirra gerðu fyrir 10 árum síðan. Þess í stað er nú meira borðað af alls kyns tilbúnum réttum. Það eru því blikur á lofti og hugsanlega verða margir af þeirri ágætu vernd gegn æðasjúkdómum sem soðningin hefur veitt hingað til.
Heimild: Marckmann P, Grønbæk M. Review. Fish consumption and coronary heart disease mortality. A systematic review of prospective cohort studies. Eur J Clin Nutr 1999;53, 585-590.
