Fleiri öryrkjar vegna offitu
Niðurstöðurnar fengust úr örorkuskrá Tryggingastofnunnar ríkisins og frá Hagstofu Íslands, en höfundar greinarinnar í Læknablaðinu eru þau Sigurður Thorlacius, dósent við Háskóla Íslands, Sigurjón B. Stefánsson, sérfræðingur á Landspítala og Laufey Steingrímsdóttir, sviðstjóri á Lýðheilsustöð.
Í greininni voru einnig sýndar breytingar á örorku þar sem offita var meðal sjúkdómsgreininga, jafnvel þótt hún væri ekki tilgreind sem aðalorsök örorkunnar. Þar hafði einnig orðið marktæk aukning á þessu tímabili, og meiri en aukning á öryrkjum í heild. Þessar niðurstöður benda eindregið til þess að fjöldi þeirra sem hafa mikla eða sjúklega offitu hér á landi fari vaxandi og þar með að offita sé vaxandi lýðfræðilegt vandamál sem bregðast þurfi við á viðeigandi hátt.
