Flestir Íslendingar fá nóg af vítamínum og steinefnum úr fæðunni
Umfjöllun um þetta efni var á neytendasíðu Blaðsins í gær, 25. apríl 2006, og vill Lýðheilsustöð bæta þar eftirfarandi við:
Í umfjölluninni kemur fram að þær þrjár opinberu kannanir sem gerðar hafa verið á síðasta aldarfjórðungi sýni að Íslendingar fái ekki nægjanlegt magn vítamína, steinefna og trefjaefna úr fæðunni og þurfi því lífsnauðsynlega að taka fæðubótarefni. Landskönnun á mataræði 2002 sýnir að flest vítamín og steinefni eru í nægu magni í fæði flestra en að þó sé almennt of lítil neysla D-vítamíns, sem erfitt er að fá í nægu magni úr fæðunni. Enda er fólk hvatt til að taka lýsi eða annan D-vítamíngjafa í ráðleggingum Lýðheilsustöðvar.
Hvetjum unga fólkið til að bæta matrvenjur sínar
Yngsti aldurshópurinn í Landskönnuninni, 15-19 ára, er hins vegar sá hópur sem fær of lítið af nokkrum öðrum vítamínum og steinefnum, þ.e. kalki, járni, fólasíni og joði auk D-vítamíns. Þetta á sér í lagi við um stúlkur en þær eru einnig líklegastar til að sleppa úr máltíðum og eru margar hverjar einfaldlega ekki að borða nóg. Hvetja þarf ungt fólk til að bæta fæðuvenjur sínar, huga að aukinni fiskneyslu, hæfilegu magni mjólkurmatar og borða enn meira af ávöxtum og grænmeti í stað þess að hvetja til þess að fólk í þessum aldurshópi noti fæðubótarefni. Bætiefni úr fæðubótarefnum öðrum en fljótandi lýsi reiknast ekki með í niðurstöðum Landskönnunar en um 64% landsmanna taka einhver bætiefni af og til. Þar eru lýsi, lýsispillur, fjölvítamín og C-vítamín algengust en annars konar fæðubótarefni eru tiltölulega sjaldgæf.
Mataræðið fer batnandi
Mataræði okkar í heild hefur ekki stórlega versnað á síðustu 25 árum, eins og sagt er í umræddri umfjöllun. Samkvæmt rannsóknum Lýðheilsustöðvar og manneldisráðs hefur til dæmis ávaxta- og grænmetisneysla aukist talsvert þótt við getum enn gert betur. Vatn er nú vinsælasti drykkur Íslendinga og heildarfita í fæðunni hefur minnkað og er nú að nálgast æskileg mörk. Hér er yngsti aldurshópurinn hins vegar einnig ólíkur þeim sem eldri eru og þyrfti að auka verulega fiskneyslu, minnka gosdrykkjaneyslu og sykurát til að mataræðið verði í samræmi við ráðleggingar.
Hægt er að lesa skýrslu úr Landskönnun 2002 hér.
Ráðlagðir dagskammtar af ýmsum vítamínum
