Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Svali kemur ekki í staðinn fyrir grænmeti og ávexti

24.8.2001

Undanfarna daga hafa foreldrar ungra skólabarna fengið í hendur bréf frá fyrirtækinu Vífilfelli, þar sem koma fram alvarlegar rangfærslur um hollustu sykraðra svaladrykkja. Í bréfinu er foreldrum talin trú um að Svali eða aðrir sykraðir svaladrykkir geti komið í staðinn fyrir ávexti í fæði barna og að Svali í nestisboxinu sé því ágæt lausn fyrir foreldra sem vilja senda börn með ávexti í skólann. Til að bæta gráu ofan á svart er tvívegis vísað í Manneldisráð í bréfinu og þannig gefið í skyn að ráðið sé sammála þessum staðhæfingum. Þarna er heldur betur hallað réttu máli því Manneldisráð hefur þvert á móti hvatt til þess að börn borði ávexti en drekki helst vatn eða léttmjólk í skólanum ­- ekki sykraða svaladrykki. Kannanir Manneldisráðs hafa sýnt að íslensk börn borða óvenju lítið af grænmeti og ávöxtum. Þessar matvörur hafa að geyma mikið af hollustuefnum sem skipta máli fyrir heilsu barna til framtíðar. Hins vegar innbyrða þau kynstrin öll af sykri og mun meira en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum. Þar sem Svali er tveir þriðju hlutar sykrað og bragðbætt vatn en aðeins einn þriðji ávaxtasafi, er hann síður en svo ákjósanleg leið til að auka neyslu barna á ávaxtavörum. Sykurneysla íslenskra barna er miklu meiri en góðu hófi gegnir. Gosdrykkir og sykraðir svaladrykkir eiga þar drjúgan hlut að máli og því er síst af öllu ástæða til að hvetja til neyslu sætra drykkja undir hollustumerkjum.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica