Tekið í taumana
Stuðningur og ábendingar fyrir þá sem vilja grennast
Aðgengileg rit um megrun og holla lífshætti hafa ekki verið á hverju strái fram til þessa. Þörfin er þó augljós miðað við allan þann fjölda fólks sem vill gjarnan breyta um lífsstíl en skortir til þess stuðning og hvatningu. Rannsóknir sýna að margir Íslendingar hafa þyngst meira en góðu hófi gegnir og er offita að verða alvarlegt heilsufarsvandamál hér á landi. Manneldisráð vill leggja sitt af mörkum til að snúa þessari þróun við með útgáfu þessa rits.
Í bæklingnum er fjallað á einfaldan hátt um þátt hreyfingar, mataræðis og ekki síst hugarfars við að halda þyngdinni í skefjum og sýnd dæmi um smávægilegar breytingar á lífsstíl sem geta gert gæfumuninn þegar þyngdin er annars vegar. Þar er líka að finna ýmis sjálfspróf og tillögur að matseðlum. Ritið er skemmtilega myndskreytt af Brian Pilkinton. Hægt er að panta eintök beint af heimasíðu Manneldisráðs, www.manneldi.is eða með því að hringja í síma 585 1480. Eins verður hægt að kaupa ritið á heilsugæslustöðvum og víðar.
