Hollustan er 12,4% ódýrari - og bilið breikkar frá fyrra ári
Þann 16. október 2002 endurtóku Manneldisráð og ASÍ könnun á kostnaði við að fylgja ráðleggingum um hollt mataræði. Sams konar könnun var gerð þann 15. október í fyrra, í kjölfar umræðu um hátt verð á ýmsum hollustuvörum.
Það kostar minna að fylgja ráðleggingum um hollt mataræði, en að borða eins og Íslendingar gera almennt. Munurinn er meiri í ár en í fyrra.
- Þótt matvöruverð hafi almennt hækkað, hefur verð á ávöxtum og grænmeti lækkað.
- Grænmetið hefur lækkað um 25% en ávextirnir um 21%.
- Dagskammtur af grænmeti í hollustukörfu, samtals 200 g., kostar 54 kr. en kostaði 72 kr. í fyrra.
- Hollstukarfan er 12,4% ódýrari en meðalkarfan. Munurinn eykst milli ára.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ og Manneldisráð stóðu saman að þann 16. október sl.
Könnun á matvöruverði
Þann 16. október síðastliðinn endurtóku Manneldisráð og ASÍ könnun á kostnaði við að fylgja ráðleggingum um hollt mataræði. Sams konar könnun var gerð þann 15. október í fyrra, í kjölfar umræðu um hátt verð á ýmsum hollustuvörum. Útbúnar voru tvær matarkörfur, hollustukarfa og meðalkarfa, og verð þeirra kannað í helstu matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Sama fyrirkomulag var í ár og í fyrra. Könnunin var gerð í átta stærstu verslanakeðjunum á höfuðborgarsvæðinu, sem samtals endurspegla ríflega 90% markaðar á svæðinu. Reiknað var vegið meðalverð hverrar vöru, í samræmi við markaðshlutdeild verslana og valin ódýrasta tegund hverrar vöru í öllum verslunum. Í hvorugri körfunni voru nein tilbúin matvæli, kaffi, te, krydd eða áfengir drykkir og ekki var gert ráð fyrir að neinn matur færi til spillis eða væri hent.
Grænmetið lækkar mest
Mánaðarskammtur af matvörum kostar 15.927 kr á mann í meðalkörfu en 13.951 kr í hollustukörfu. Í ár er hollustukarfan því 12,4% ódýrari en meðalkarfan en var 9,3% ódýrari í fyrra. Þar sem grænmeti vegur hlutfallslega þyngra í hollustukörfunni en meðalkörfunni, hefur verðlækkun á grænmeti meiri áhrif þar en í meðalkörfunni. Sú verðlækkun sem varð í kjölfar lækkunar og í sumum tilfellum niðurfellingar á tollum á grænmeti á fyrri hluta árs sýnir þetta glöggt. Grænmeti kostar nú 1.521 kr. á mann í hollustukörfu og hefur lækkað um 25% milli ára, en í meðalkörfunni er grænmeti að andvirði 756 kr. Samtals var kostnaður vegna grænmetis, ávaxta og kartaflna 23,7% af verði hollustukörfu en 12,7% af meðalkörfu. Liðurinn grænmeti, ávextir og kartöflur er eini liðurinn samkvæmt könnuninni sem hefur lækkað milli ára, aðrir liðir hafa hreyfst lítillega upp á við, sem þýðir að verð á meðalkörfunni hefur hækkað en verð á hollustukörfunni hefur lækkað milli ára.
Hár matarkostnaður
Í ljósi þess hvernig valið er í matarkörfurnar má glöggt sjá að heildarkostnaður við matarkaup hér er mjög hár, eða 63.708 kr fyrir fjögurra manna fjölskyldu með meðalkörfu og 55.804 kr með hollustukörfu. Almennt má búast við að matarkostnaður heimilanna sé mun meiri, þar sem ógjörningur er að koma í veg fyrir að matur skemmist við geymslu og ólíklegt er að mörgum takist alltaf að velja ódýrustu vörurnar. Tilbreytingar á borð við tilbúna rétti, krydd, kaffi, te og áfengi auka svo enn matarútgjöld heimilanna.
Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum eða við sölu nema með heimild Manneldisráðs eða ASÍ
Mynd 1. Hollustukarfa og meðalkarfa
Mynd 2. Í hvað fara matarpeningarnir
Mynd 3. Verð nokkurra matvælafokka í hollustukörfu 2001-2003
Nánari upplýsingar um hollustukörfu
