Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Handbók fyrir skólamötuneyti

19.8.2003

Handbók og námskeið fyrir starfsfólk skólamötuneyta

Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar handbók fyrir skólamötuneyti með hagnýtum ábendingum fyrir starfsfólk um matseðlagerð, hollustu, matreiðslu, hreinlæti, innkaup og birgja. Starfshópur á vegum Manneldisráðs vann handbókina en verkefnið var styrkt af Fræðsluráði Reykjavíkur, Hjartavernd, Krabbameinsfélaginu og Manneldisráði. Um er að ræða veglega möppu og stendur hún skólum til boða gegn 1000 kr/eintak og póstburðargjaldi. Hægt er að panta bókina beint af heimsíðu Manneldisráðs, www.manneldi.is, undir bæklingar og rit. Handbókin er þó öðru fremur ætluð sem kennslugagn á námskeiðum fyrir starfsfólk skólaeldhúsa og voru fyrstu námskeiðin haldin fyrir Reykjavíkurskóla 18.-21. ágúst í samvinnu við Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.

Með von um að handbókin komi að gagni við að bjóða börnum góðan og hollan mat í skólanum.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica