Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Mikilvægara að fá nóg D-vítamín en ríflegt magn af kalki

11.11.2005

Ný íslensk rannsókn sýnir að það skiptir meira máli fyrir kalkbúskap líkamans að fá nægilegt magn af D-vítamíni heldur en að auka kalkskammtinn umfram ráðlagðan dagskammt. Rannsóknin, sem var unnin á Landspítala- háskólasjúkrahúsi í samvinnu við Lýðheilsustöð, birtist í nýjasta tölublaði bandaríska læknablaðsins Journal of American Medical Association, en höfundar greinarinnar voru þau Laufey Steingrímsdóttir, Örvar Gunnarsson, Ólafur S. Indriðason, Leifur Franzson og Gunnar Sigurðsson.

Rannsóknin beindist að því að meta kalkbúskap 1600 Íslendinga á aldrinum 35-85 ára með því að mæla kalkhormón í blóði, ásamt D-vítamíni og kalki. Kalkhormónið hækkar alla jafna í blóði þegar kalsíum til líkamans er af skornum skammti. Rannsóknin sýndi að ef D-vítamínið er ófullnægjandi þá geta jafnvel stórir kalkskammtar ekki yfirunnið það og merki um ófullnægjandi kalkbúskap gera vart við sig. Hins vegar nægir hóflegri kalkneysla, þ.e. 800 mg á dag, svo framarlega sem D-vítamínið helst hátt. D-vítamín í blóði Íslendinga lækkar alla jafna mjög um vetrartímann, einkum meðal þeirra sem ekki taka lýsi eða D-vítamínpillur.
Laufey S„Það er tvímælalaust ástæða til að hvetja fólk á Íslandi og öðrum norðlægum slóðum, til að taka D-vítamín aukalega, annað hvort lýsi, belgi eða pillur, til að styrkja beinin og koma í veg fyrir beinþynningu. D-vítamín er í fáum fæðutegundum og það er því undantekning frá þeirri almennu reglu, að hollt og fjölbreytt fæði nægi til að tryggja góða næringu”, segir Laufey Steingrímsdóttir, einn höfunda greinarinnar.

Umfjöllun í Peer View Media Bar

JAMA



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica